FLE blaðið - 01.01.2020, Page 4

FLE blaðið - 01.01.2020, Page 4
4 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020 GÆÐASTIMPILL AÐ VERA Í FLE Viðtal við Bryndísi Björk Guðjónsdóttur nýja formann FLE PERSÓNAN BRYNDÍS Hvaðan ertu og hverra manna ertu? Ég er ættuð frá Ísafirði en alin upp á Skagaströnd. Faðir minn var Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri og móðir mín Halldóra Þorláksdóttir húsmóðir. Þau eru frá Ísafirði en fluttu til Skagastrandar árið 1970 þar sem ég ólst upp. Ég er hluti af sjómannafjölskyldu enda snérist allt um sjóinn á mínum uppvaxtartíma i sjávarplássi. Pabbi minn var alltaf á sjónum, á togara og bræður mínir fóru á sjóinn. Sjálf fór ég á sjóinn einn túr þegar ég var 17 ára, sem kokkur á Örvari. Annars vann ég í fiskvinnslu unglingsárin á sumrin og með skóla. Þá var það þannig að ef það vantaði fólk, í fiskvinnslu eða jafnvel útskipun á fiski, þá var farið í elstu bekkina í grunnskólanum og gefið frí til að bjarga verðmætum. Mesta erfiðisvinna sem ég hef lent í var einmitt að vera kölluð í útskipun, það reyndi á. Hvernig var að alast upp á Skagaströnd? Það var gott og áhyggjulaust líf í sjávarþorpinu. Þetta var 600 – 700 manna þorp þegar ég var að alast upp og mikið af krökkum. Skagaströnd var dæmigert sjávarþorp, eitt fyrirtæki sem allir unnu hjá. Í hvaða skólum varstu? Ég var í grunnskólanum á Skagaströnd, síðan var ég eitt ár í Versló og svo í Fjölbrautarskólanum á Sauðárkróki. Ég fór í Tækniháskólann og lærði iðnrekstrarfræði, seinna tók ég meistaranám í reikningshaldi og endurskoðun í Háskólanum í Reykjavík og að lokum löggildingarpróf í endurskoðun. Hvernig er starfsferillinn? Eins og gengur þá vann ég í fiski, sjoppu og búð sem unglingur. Svo hef ég verið í ýmsum störfum, var meðal annars bókari hjá sveitarfélaginu Skagaströnd, framkvæmdastjóri skóverksmiðju, ég rak gistiheimili í eitt ár með vinkonu minni og var framkvæmdastjóri Héraðsnefndar Austur Húnvetninga (sem er samstarfsvettvangur sveitarfélaganna í A-Hún.). Einnig rak ég bókhaldsstofu áður en ég byrjaði hjá PwC, þar sem ég hef starfað síðan 2005. Óvenjulegasti starfsvettvanginn var samt að ég kenndi erobík á Skagaströnd í nokkur ár með vinkonu minni. Þetta var vinsælt enda kom stór hluti kvenna í bænum á námskeið hjá okkur. Í litlum þorpum er það oft þannig að ef þú vilt að eitthvað sé gert, þá þarftu sjálfur að koma því til leiðar. Þetta var mjög skemmtilegt og var félagslega mjög jákvæð upplifun. Ég held að það verði vaxandi þörf fyrir staðfestingar annarra upplýsinga en hefðbundinna reikningsskila, svo sem ýmissa ófjárhagslegra upplýsinga og mögulega einnig samtímaupplýsinga

x

FLE blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.