FLE blaðið - 01.01.2020, Side 6
6 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020
félagsmanna. Félagið verður 85 ára á þessu ári en skylduaðildin að
því hefur bara verið í 11 ár og ég tel það hagsmuni allra að það sé til
hagsmunafélag endurskoðenda. En það eru félagsmenn sem þurfa að
móta félagið og að það er stjórnarinnar að þjónusta félagsmenn. Ég tel að
félagið sé mikilvægt í hagsmunagæslu fyrir félagsmenn og til að hafa áhrif
til góðs á þá umgjörð endurskoðunar, reikningsskila og skattamála sem
fyrirtæki og einstaklingar búa við og við vinnum eftir.
En ég tel einnig að innra starf félagsins og félagsmanna sé mjög mikilvægt.
Hlutverk félagsins er ekki síst að stuðla að faglegum og siðferðislegum
gildum innan stéttarinnar. Þá er félagið vettvangur félagslegra og
faglegra samskipta meðal félagsmanna, til dæmis með því að halda ýmsa
viðburði og ráðstefnur. Einnig hefur félagið það hlutverk að stuðla að
jákvæðri ímynd og trúverðugleika stéttarinnar. Ég tel að það eigi að vera
gæðastimpill að vera aðili að Félagi löggiltra endurskoðenda.
Einnig tel ég að erlent samstarf sé mikilvægt, Ísland er hluti af hringiðu
heimsins og erlend samskipti eru sífellt að verða mikilvægari fyrir
bæði einstaklinga og fyrirtæki. Þó við séum lítil höfum við rödd í
alþjóðasamfélaginu og mitt mat er að við eigum að nýta okkur það.
Hvað sérðu framundan hjá endurskoðendum?
Fyrir endurskoðendastéttina er mikilvægt að vera vakandi fyrir þörfum
markaðsins og hafa frumkvæði að jákvæðum breytingum. Ég held að það
verði vaxandi þörf fyrir staðfestingar annarra upplýsinga en hefðbundinna
reikningsskila, svo sem ýmissa ófjárhagslegra upplýsinga og mögulega
einnig samtímaupplýsinga. Ég tel að endurskoðendur séu best til
þess fallnir að vinna slík verkefni fyrir markaðinn, þeir hafa þekkingu á
staðfestingarvinnu og hafa alþjóðlega staðla um slíka vinnu til að styðjast
Veiðiklóin Bryndís. Fjallakona og ferðalangur.
við og vinna eftir. Jafnframt eru endurskoðendur
undir reglubundnu opinberu eftirliti með störfum
sínum ásamt því að endurmenntunarkröfur eru
gerðar á endurskoðendur. Mér er ekki kunnugt um
að aðrar stéttir séu undir slíkum kröfum.
Ég er einnig á þeirri skoðun að ný tækni muni
hafa áhrif á vinnu endurskoðenda. Með þeim
breytingum sem eru að verða vegna þróunar
í upplýsingatækni þurfa endurskoðendur að
einhverju leyti að hafa annan bakgrunn en núna.
Mikilvægt sé að taka upplýsingatækni meira
inn í menntun endurskoðenda og einnig þurfa
endurskoðunarfyrirtæki að fá til sín sérþekkingu
t r ygg ingars tærð f ræð inga , ve rk f ræð inga ,
tölvunarfræðinga og fleiri fagstétta í meira mæli en
nú er.
Lokaorðin
Ég tel að sé mikilvægt að halda góðum samskipum
við alla aðila sem tengjast störfum endurskoðenda,
þar með talið hið opinbera, varðandi lagasetningar
um endurskoðendur og störf þeirra en ekki síður
við aðila markaðarins. Með því verða tryggð opin og
heiðarleg samskipti með það sameiginlega markmið
okkar allra að tryggja réttmæti og áreiðanleika
upplýsinga fyrir markaðinn.
Viðtal Herbert Baldursson