FLE blaðið - 01.01.2020, Side 8
8 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020
um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka,
„einstaklingur, einn eða fleiri, sem í raun á starfsemina eða
stýrir þeim viðskiptamanni, lögaðila eða einstaklingi, í hvers
nafni viðskipta eða starfsemi er stunduð eða framkvæmd“. Til
raunverulegra eigenda teljast þeir:
• einstaklingar sem í raun eiga eða stjórna lögaðila í
gegnum beina eða óbeina eignaraðild að meira en 25%
hlut; eða
• ráða meira en 25% atkvæðisréttar með beinum eða
óbeinum hætti; eða
• teljast á annan hátt hafa yfirráð.
Til grundvallar raunverulegu eignarhaldi getur því verið beinn
eignarhlutur, óbeinn eignarhlutur, aukið atkvæðavægi á grundvelli
samninga eða yfirráð með öðrum hætti, sama í hvaða formi þau
yfirráð koma. Það getur því þurft að rýna hvert tilvik fyrir sig til að
meta hverjir teljast vera raunverulegir eigendur, sé málið ekki svo
einfalt að hann Páll Pálsson á vélaverkstæði Páls, sé eini eigandi,
stofnandi og framkvæmdastjóri.
Dreift eignarhald er um að ræða, og ekki unnt að tilgreina
raunverulegan eiganda samkvæmt framangreindu, þegar ekki er
hægt að rekja eignarhald beint eða óbeint, til aðila með meira en
25% eignarhlut eða atkvæðavægi. Þegar um dreift eignarhald er
að ræða, skal sá eða þeir sem stjórna starfsemi lögaðila teljast
raunverulegir eigendur. Ekki hafa verið gefnar út leiðbeiningar um
hverjir teljast stjórna starfsemi í slíkum tilvikum, en með vísan í
lög um hlutafélög og einkahlutafélög, ætti í flestum tilvikum að
vera óhætt að vísa til stjórnar félags. Þó ber þess að geta að mat
þarf að leggja á hvert tilvik fyrir sig, þ.e. hvort annar aðili fari með
raunverulega stjórnun lögaðila en stjórn þess.
HVENÆR OG HVAÐ SKAL SKRÁ?
Lögaðilum á Íslandi er þannig gert skylt að skrá raunverulegt
eignarhald hjá fyrirtækjaskrá RSK. Frá og með ágúst 2019 skulu
allir nýskráðir lögaðilar sem undir framangreinda skráningarskyldu
falla, hafa skráð raunverulega eigendur við skráningu. En þegar
skráðir lögaðilar, hafa frest til 1. mars 2020 til að ganga frá slíkri
skráningu. Sérstaka athygli ber að vekja á síðari frestinum, en
við setningu laganna var gert ráð fyrir að þeir lögaðilar sem
voru þegar skráðir, hefðu til 1. júní 2020 til að skrá raunverulegt
eignarhald. Þessi frestur var snarlega styttur til 1. mars 2020
undir lok árs 2019, með frekar þunnum skýringum.
Þeir lögaðilar sem falla undir skráningarskyldu og eru ekki
nýskráðir frá ágúst 2019, hafa því til 1. mars 2020 til að skrá
raunverulegt eignarhald hjá fyrirtækjaskrá. Um nokkuð stuttan
frest er að ræða og þá sérstaklega þegar litið er til umfangs
skráningar og fjölda lögaðila sem undir gildissvið laganna fellur.
Óljóst er hvernig fyrirtækjaskrá er í stakk búin til að vinna úr þeirri
flóðbylgju skráninga sem vænta má að berist nú á fyrstu vikum
ársins.
Þessu til viðbótar skal tilkynna um allar breytingar á eignarhaldi
eða skráðum upplýsingum innan tveggja vikna. Þetta felur í
sér að allar breytingar sem eru gerðar á eignarhaldi og snerta
raunverulega eigendur eða breytingar á stjórn eða stjórnanda sé
um dreift eignarhald að ræða, skal skrá hjá fyrirtækjaskrá innan
tveggja vikna frá breytingu. Rétt er þó að vekja athygli á því að
frestur til að tilkynna um breytingar á stjórn og aðrar breytingar
hjá fyrirtækjaskrá er almennt mánuður frá því ákvörðun er
tekin, er því um helmingi styttri frest að ræða vegna breytinga
á raunverulegum eigendum en almennt vegna tilkynninga til
fyrirtækjaskrár.
Með tilkynningu til fyrirtækjaskrár skal veita upplýsingar um
raunverulega eigendur og skulu upplýsingar m.a. ná til nafns,
lögheimilis, kennitölu, ríkisfangs og eignarhluta, auk gagna
sem styðja við framangreindar upplýsingar. Nokkur vafi hefur
leikið á um hvað geti talist gögn sem styðja við framangreindar
upplýsingar og ekki eru skýrar verklagsreglur til að fylgja eftir
enn sem komið er. Hingað til hefur t.d. verið hægt að styðjast
við undirritaðar hlutaskrár eða undirritaða ársreikninga sem bera
með sér upplýsingar um eignarhald.
ÁBYRGÐ Á SKRÁNINGU
Þá er ástæða til að vísa til þess að skráning um raunverulegt
eignarhald er á ábyrgð viðkomandi lögaðila. Það felur í sér að
hver og einn lögaðila skal hafa eftirlit með því hverjir teljast
vera raunverulegir eigendur hverju sinni og skrá breytingar
innan tveggja vikna. Í ansi mörgum tilfellum skapar þetta ekkert
sérstakt vandamál, þar sem t.d. um er að ræða lítið fyrirtæki í
eignarhaldi fárra tengdra aðila eins og fyrrgreint vélaverkstæði
Páls. Hins vegar vandast málin aðeins í þessari kvöð þegar
litið er til félaga sem er undir flóknu eignarhaldi og jafnvel
eignarhaldi erlendra aðila í gegnum eignarhaldsfélög. Möguleikar
skráningarskyldra lögaðila hér á landi til að fylgja breytingum á
eignarhaldi eftir sem rekja má í gegnum eignarhaldsfélög og yfir
landamæri, geta verið takmarkaðir. En á þeim hvílir samt sem
áður skyldan og lúta þeir því viðurlögunum. Þau viðurlög eru
ansi víðtæk og þung, svo að ekki er rétt að byrja nýtt ár á slíkum
neikvæðum nótum, en vísa til viðurlagakafla laganna.
ÁBYRGÐ ANNARRA AÐILA
Í ljósi þess vettvangs sem þessi pistill er ritaður fyrir, er rétt
að fjalla stuttlega um aðkomu annarra aðila að skráningu
raunverulegra eigenda. Samkvæmt lögunum skulu
tilkynningarskyldir aðilar og eftirlitsaðilar samkvæmt lögum
um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
innan tveggja vikna tilkynna ríkisskattstjóra verði þeir í störfum
sínum varir við misræmi milli upplýsinga um raunverulega
eigendur í fyrirtækjaskrá og upplýsinga sem þeir búa yfir. Meðal
tilkynningarskyldra aðila eru t.d. endurskoðendur og lögmenn.
Hér er um skyldu til að leggja sjálfstætt mat á gildi upplýsinga
að ræða. Ekki bara verði þeir varir við misræmi, heldur er gengið
lengra í greinargerð með þessu ákvæði og beint talað um