FLE blaðið - 01.01.2020, Síða 10
10 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020
Það hefur varla farið fram hjá félagsmönnum að lög um
aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka tóku
nýverið gildi. Með þeim er þeim aðilum, sem stunda starfsemi
sem mögulega getur verið misnotuð til peningaþvættis eða
fjármögnunar hryðjuverka, gert skylt að þekkja deili á
viðskiptavinum sínum og starfsemi þeirra sem og að tilkynna
til yfirvalda ef grunur vaknar um slíka ólögmæta starfsemi. Hér
er ætlunin að tæpa aðeins á því hvað þessi nýju lög þýða fyrir
endurskoðendur.
Í lögunum falla endurskoðendur undir tilkynningarskylda aðila.
Skyldum endurskoðenda samkvæmt nýju lögunum er hér skipt
í fernt:
a. Skylda til að gera áhættumat á rekstri sínum
b. Skylda til að framkvæma áreiðanleikakönnun á
viðskiptamönnum
c. Tilkynningarskylda til yfirvalda
d. Aðrar skyldur
ÁHÆTTUMAT
Í lögunum er fjallað um tvenns konar áhættumat; annars vegar
áhættumat ríkislögreglustjóra (skv. 4. grein laganna) og hins
vegar áhættumat sem hver og einn eftirlitsskyldur aðili skal
framkvæma (skv. 5. grein laganna). Eftirlitsskyldir aðilar skulu
hafa áhættumat ríkislögreglustjóra til hliðsjónar er þeir gera sitt
áhættumat. Áhættuflokkar samkvæmt mati ríkislögreglustjóra
eru fjórir: 1) lítil áhætta, 2) miðlungs áhætta, 3) verulega áhætta
og 4) mikil áhætta. Samkvæmt mati ríkislögreglustjóra fellur
starfsemi endurskoðenda í 3. flokkinn (verulega áhætta). Ekki
er að finna nákvæmar leiðbeiningar í lögunum um hvernig
áhættumat tilkynningarskyldra aðila skal líta út en hér er reynt
að lista upp það helsta sem áhættumatið þarf að innihalda:
1. Áhættumat skal vera skriflegt.
2. Matið skal innihalda greiningu og mat á hættu á
peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
3. Áhættumat skal taka mið af áhættuþáttum sem tengjast
viðskiptamönnum, viðskiptalöndum eða svæðum, vörum,
þjónustu, viðskiptum, tækni og dreifileiðum.
AÐGERÐIR GEGN PENINGAÞVÆTTI
LÖG UM AÐGERÐIR GEGN PENINGAÞVÆTTI OG
FJÁRMÖGNUN HRYÐJUVERKA NR. 140/2018
Kjartan Arngrímsson, endurskoðandi hjá Invicta
Ekki er að finna nákvæmar leiðbeiningar
í lögunum um hvernig áhættumat
tilkynningarskyldra aðila skal líta út