FLE blaðið - 01.01.2020, Síða 13

FLE blaðið - 01.01.2020, Síða 13
13FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020 Höfundatekjur manna hafa fram til þessa verið skattlagðar eftir almennum reglum um skattlagningu tekna manna, þ.e. verið skattlagðar fullum tekjuskatti og útsvari, eins og t.d. laun og hagnaður af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi. Hvort höfundatekjur manna hafa verið flokkaðar sem tekjur í eða utan atvinnurekstrar eða sjálfstæðrar starfsemi hefur ráðist af ólögákveðnum viðmiðum um umfang, efnahagslegan tilgang starfsemi og eðli teknanna. Samkvæmt nýju ákvæðunum skulu sumar höfundatekjur manna flokkaðar og skattlagðar sem fjármagnstekjur, þ.e. skulu sæta skattlagningu 22% tekjuskatts (fjármagnstekjuskatts) en engri annarri skattlagningu. Um er að ræða skattlagningu brúttó tekna, því enginn frádráttur heimilast frá tekjunum. Er það í samræmi við skattlagningu annarra fjármagnstekna manna. Samkvæmt 1. gr. nýju reglugerðarinnar skulu þær höfundatekjur manna, sem nýju ákvæðin taka til, í öllum tilvikum flokkaðar og skattlagðar sem fjármagnstekjur en ekki sem tekjur af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi. Lögaðilar geta ekki verið höfundar, en lögaðilar geta hins vegar verið rétthafar höfundatekna. Nýju ákvæðin breyta engu um flokkun og skattlagningu höfundatekna lögaðila, þær skulu eftir sem áður vera flokkaðar og skattlagðar sem tekjur af atvinnurekstri. AFMÖRKUN FJÁRMAGNSTEKNA Skattlagning höfundatekna sem fjármagnstekna takmarkast við greiðslur til manna vegna síðari afnota af verki eftir að það hefur verið gert almenningi aðgengilegt, birt eða gefið út með lögmætum hætti, sbr. ákvæði 2. og 3. gr. höfundalaga. Frumvarp það er varð að lögum nr. 111/2019 sætti breytingum í meðförum Alþingis að tillögu fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis gerði að sinni. Í upphaflegri gerð frumvarpsins var lagt til að aðeins skyldu skattlagðar sem fjármagnstekjur greiðslur til höfunda og rétthafa frá viðurkenndum samtökum rétthafa. Það skilyrði var fellt brott. Í því fólst rýmkun á gildissviði ákvæðanna. Hér á eftir fer umfjöllun um einstakar tegundir höfundatekna. Greiðslur fyrir rétt til yfirfærslu frumverks í nýjan búning Í nefndaráliti meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis kemur fram að við umfjöllun nefndarinnar hafi verið gagnrýnt að samkynja greiðslur yrðu skattlagðar með mismunandi hætti eftir því hvort rétthafi fengi þær greiddar frá viðurkenndum rétthafasamtökum eða ekki. Gagnrýni í þessa veru kom fram í umsögn Rithöfundasambands Íslands (RSÍ) um frumvarpið. Í umsögninni segir að stór hluti tekna rithöfunda eftir frumsköpun verks lúti t.d. að sölu á kvikmyndarétti að bókmenntaverkum eða rétti til sviðsuppsetningar í leikhúsi. Slíkir samningar séu ávallt gerðir á einstaklingsgrunni en ekki fyrir tilstilli eða milligöngu samtaka rétthafa. Enginn eðlismunur væri á sölu kvikmyndaréttar verndaðs bókmenntaverks og greiðslum sem færu í gegnum RSÍ. Að ósk efnahags- og viðskiptanefndar tók fjármála- og efnahagsráðuneytið saman minnisblað um fram komnar umsagnir. Í minnisblaðinu kemur fram að ráðuneytið var ósammála þeirri skoðun RSÍ að enginn eðlismunur væri á annars vegar greiðslum til rétthafa vegna t.d. sölu á kvikmyndarétti verndaðs bókmenntaverks og hins vegar þeim greiðslum sem bærust rétthöfum í gegnum RSÍ. Við setningu nýju reglugerðarinnar virðist ráðuneytið hafa skipt um skoðun hvað varðar seldan rétt til kvikmyndunar eða sviðsuppsetningar bókmenntaverks. Í 3. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar segir: „Greiðslur til rétthafa vegna aðlögunar höfundarverks með yfirfærslu frumverks í nýjan búning vegna síðari afnota þess skulu einnig teljast til fjármagnstekna án nokkurs frádráttar. Hér undir falla tekjur af síðari afnotum á frumsköpun höfundar hvort sem frumhöfundur gerir það sjálfur eða aðrir menn með hans leyfi eftir því sem lög krefjast. Sem dæmi um greiðslur sem falla hér undir eru greiðslur af ýmsum réttindum, s.s. vegna kvikmynda, sjónvarpsmynda, leikgerðar, tónsmíða og þýðinga vegna nýtingar frumverks.“ Af þessum orðum verður ráðið að flokka skuli og skattleggja sem fjármagnstekjur greiðslur fyrir rétt til að nýta bókmenntaverk (frumverk) til kvikmyndunar, sviðsuppsetningar og þýðingar á annað tungumál. Slík flokkun og skattlagning afmarkast við greiðslu fyrir rétt til að yfirfæra frumverk í nýjan búning, en nær ekki til greiðslu fyrir yfirfærsluna sjálfa og það eins þótt höfundur frumverks annist yfirfærsluna. Greiðslur á grundvalli samningskvaðaleyfis Samkvæmt höfundalögum gera samtök rétthafa samninga við notendur um heimildir þeirra til hagnýtingar áður birtra eða útgefinna verka, svonefnd samningskvaðaleyfi. Slíkir samningar geta ekki aðeins náð til verka félagsmanna heldur einnig til verka höfunda sem standa utan samtakanna. Höfundar utan samtakanna geta gert kröfu um þóknun fyrir afnot á grundvelli samningskvaðaleyfis. Slíkri kröfu verður einungis beint að samtökunum. Samningskvaðaleyfi getur tekið til heimildar: • Safna til að gera eintök af birtum verkum í safni sínu (12. gr. b.). • Til endurbirtingar listaverks í almennu fræðsluefni (3. mgr. 14. gr.). • Stofnana, samtaka og fyrirtækja til að gera eintök af útgefnum verkum til nota í starfsemi sinni (1. mgr. 18. gr.). • Opinberra stofnana og stofnana í almannaþágu til að gera eintök af birtum verkum til nota fyrir þá sem vegna fötlunar eða af öðrum ástæðum eru ófærir um að nýta sér hefðbundna fjölmiðlaþjónustu (4. mgr. 19. gr.). • Útvarpsstöðva til útsendingar útgefinna verka (23. gr.). • Til að endurvarpa um kapalkerfi verki sem er löglega útvarpað (23. gr. a.). • Útvarpsstöðva til endur útsendingar verka úr safni sínu (23. gr. b.).

x

FLE blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.