FLE blaðið - 01.01.2020, Qupperneq 15

FLE blaðið - 01.01.2020, Qupperneq 15
15FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020 GREIÐENDUR Skattlagning höfundagreiðslna sem fjármagnstekna er ekki bundin við að greiðandinn sé viðurkennd samtök rétthafa. Í höfundalögum er viðurkenndum samtökum rétthafa falin innheimta og miðlun til rétthafa á öllum greiðslum samkvæmt lögunum. Eins og hér framar er rakið má ætla að skattlagðar skuli sem fjármagnstekjur allar greiðslur til manna á grundvelli höfundalaga. Viðurkennd samtök rétthafa eru nú: Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF), Myndhöfundasjóður Íslands (Myndstef), Rithöfundasamband Íslands (RSÍ), Hagþenkir – félag höfunda fræðirita og kennslugagna, Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda (SFH), Fjölís og Innheimtumiðstöð gjalda (IHM). Greiðslur fyrir notkun bóka á bókasöfnum annast stofnun eða félagasamtök sem úthlutunarnefnd felur það verkefni. TÍMAMARK SKATTSKYLDU Í ákvæðum laga nr. 111/2019 og í nýju reglugerðinni er jafnan tiltekið að „greiðslur“ skuli skattlagðar sem fjármagnstekjur manna. Af þeirri orðnotkun mætti ætla að skattskyldu sé ætlað að myndast við það tímamark þegar greiðsla umræddra tekna á sér stað, en ekki þegar krafa myndast til teknanna, sem er þó meginregla um tímamark skattskyldu tekna. Á þetta benti KPMG í umsögn sinni um drög að reglugerðinni. Fjármála- og efnahagsráðuneytið brást við ábendingunni með því að auka málsgrein við 5. gr. reglugerðarinnar frá því sem verið hafði í drögunum. Málsgreinin, sem er 3. mgr., hljóðar svo: „Tekjur af höfundarréttindum skulu taldar til tekna á því ári sem þær verða til, þ.e. þegar myndast hefur krafa þeirra vegna á hendur einhverjum, sbr. 2. mgr. 59. gr. laga um tekjuskatt.“ Með þeim orðum tók ráðuneytið af allan vafa um það að skattskylda umræddra höfundatekna myndast þegar krafa stofnast til teknanna og það eins þótt greiðsla eigi sér síðar stað. Greiðslur frá viðurkenndum samtökum rétthafa byggjast á úthlutun, aðrar en fylgiréttargreiðslur. Krafa rétthafa stofnast við slíka úthlutun. Sömu sögu er að segja af úthlutun úthlutunarnefndar á greiðslum fyrir afnot verka á bókasöfnum. Krafa rétthafa til fylgiréttargjalds stofnast við endursölu listaverks í atvinnuskyni eða á listmunauppboði. Krafa til greiðslu, fyrir nýtingarrétt bókmenntaverks til kvikmyndunar, sviðsuppsetningar eða þýðingar á annað tungumál, stofnast þegar bindandi samningur kemst á um slíka nýtingu og greiðslu fyrir hana. STAÐGREIÐSLA SKATTS Höfundagreiðslur, sem skattlagðar skulu sem fjármagnstekjur, skulu sæta afdrætti skatts í staðgreiðslu eftir ákvæðum laga nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur. Aðrar höfundagreiðslur, þ.m.t. greiðslur til lögaðila sem rétthafa, skulu ekki sæta afdrætti skatts í staðgreiðslu eftir þeim lögum. Skylda, til að halda skatti eftir í staðgreiðslu af umræddum greiðslum og skila skattinum í ríkissjóð, hvílir á samtökum rétthafa sem annast slíkar greiðslur, skv. 2. mgr. 5. gr. nýju reglugerðarinnar. Ekki er í reglugerðinni sérstaklega kveðið á um tímamark afdráttar skatts í staðgreiðslu, en vísað er til almennra reglna þar um. Meginregla um tímamark afdráttar skatts af vöxtum er þegar vextirnir eru greiddir eða færðir rétthafa til eignar á reikningi. Afdráttur skatts af arði skal fara fram við greiðslu, en þó ekki síðar en á síðasta uppgjörstímabili þess árs þegar ákvörðun um úthlutun hans er tekin. Að virtum þeim reglum verður að ætla að samtök rétthafa skuli halda skatti í staðgreiðslu eftir af höfundagreiðslum við greiðslu en þó ekki síðar en á síðasta uppgjörstímabili þess árs þegar viðkomandi úthlutun á sér stað. Hvert uppgjörstímabil (greiðslutímabil) afdregins skatts er þrír mánuðir, þ.e. janúar–mars, apríl–júní, júlí–september og október–desember. Gjalddagar eru 20. apríl, 20. júlí, 20. október og 20. janúar og er eindagi 15 dögum síðar. Greiðslu til innheimtumanns ríkissjóðs skal fylgja skilagrein á formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Staðgreiðsla skatts af greiðslum af umræddum toga til höfunda eða rétthafa, sem aðeins bera takmarkaða skattskyldu á Íslandi, fer ekki eftir lögum nr. 94/1996 heldur eftir lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 6. tölul. 5. gr. þeirra laga. Sigurjón Högnason

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.