FLE blaðið - 01.01.2020, Side 25
Í annað sinn á árinu afhendir Atvinnuvega- og nýsköpunar ráðuneytið
löggildingarskírteini til tíu manna hóps löggiltra endurskoðenda. Þessi hópur
þreytti próf til löggildingar í endurskoðun í október 2019. Þetta er einnig
í síðasta sinn sem ráðuneytið hefur með þessi leyfismál að gera því með
nýjum lögum sem tóku gildi um áramót þá færist umsýslan yfir til nýskipaðs
Endurskoðunarráðs. Útskriftin fór fram 18. desember. Sextán manns þreyttu
prófið og tíu stóðust það, þar af þrjár konur. Við óskum hópnum til hamingju
með áfangann og bjóðum velkomin í félagið. Á árinu 2019 hafa því bæst við í
hóp löggiltra endurskoðenda 14 karlar og 6 konur.
NÝIR LÖGGILTIR ENDURSKOÐENDUR
Á myndinni frá vinstri eru: Elías Þór Sigfússon Deloitte, Arnar Freyr Gíslason Deloitte, Anna Guðrún Gunnlaugsdóttir KPMG, Andri
Elvar Guðmundsson EY, Stefán Ingi Þórisson PwC, Elín Pálmadóttir PwC, Þór Reynir Jóhannsson PwC, Fríða Hrönn Elmarsdóttir
BDO, Pétur Örn Björnsson KPMG.
Andri Elvar Guðmundsson EY
Anna Guðrún Gunnlaugsdóttir KPMG
Arnar Freyr Gíslason Deloitte
Elías Þór Sigfússon Deloitte
Elín Pálmadóttir PwC
Fríða Hrönn Elmarsdóttir BDO
Guðmundur Óli Magnússon GT, UK
Pétur Örn Björnsson KPMG
Stefán Ingi Þórisson PwC
Þór Reynir Jóhannsson PwC
gervigreindar eða vélvits sem við endurskoðendur þurfum og
munum tileinka okkur í náinni framtíð þá mun hún ekki koma í
staðinn fyrir hinn mannlega þátt.
Traust og siðferðileg gildi eru því afar mikilvæg í störfum
endurskoðenda og það á ekki síður við aukna tæknivæðingu í
störfum okkar. Höfum það í huga að almenningur vill geta
borið fullt traust til okkar sem sérfræðinga á okkar sviði og
geta leitað til okkar með sín mál í fullum trúnaði. Við ættum því
að reyna að temja okkur þá hugsun að þeir sem við störfum
fyrir, hvort heldur það eru fyrirtæki eða einstaklingar, séu
skjólstæðingar okkar frekar en viðskiptavinir. Hér hefur því
félag eins og okkar mikilvægu hlutverki að gegna fyrir alla sína
félagsmenn, sama hvaða störfum þeir gegna út í þjóðfélaginu,
á hinum almenna vinnumarkaði eða hjá endur skoðunar-
fyrirtækjum og það alveg burt séð frá stærð þeirra.
Að lokum ber að þakka fráfarandi stjórn og nefndum fyrir
ánægjulegt samstarf á liðnu ári og ykkur öllum félagsmenn
góðir fyrir að hafa tekið þátt í þeim atburðum sem félagið
hefur staðið fyrir á liðnu ári.
Sigurður B. Arnþórsson
25FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2020