Muninn

Árgangur

Muninn - 01.08.2008, Blaðsíða 10

Muninn - 01.08.2008, Blaðsíða 10
10 Ást við fyrstu sýn Egils Malt og Aappelsín ÍMA Aðalbjörn Hannesson Aðalbjörn Hannesson úr 3. X er formaður Íþróttafélags MA (ÍMA). Hann hefur verið formaður ÍMA í tvö ár og þar áður sat hann í stjórn félagsins sem fulltrúi 1. bekkjar. Hann svaraði fáeinum spurningum fyrir okkur um starfsemi félagsins og fleira. Hver er helsta ástæðan fyrir því að þú bauðst þig fram sem formann ÍMA? Það gekk mjög vel að vera í stjórninni í 1. bekk og mér finnst gaman að hafa áhrif á félagslíf skólans. Hverjir sitja með þér í stjórn ÍMA? Arna Sif 1.G, Guðmundur 3. F og Sesselja 3.U. Hvað er það helsta sem þið hafið gert í vetur? Við héldum bandýmót í byrjun október en þar bar 3. X sigur úr býtum. Svo héldum við fótboltamót í byrjun desember þar sem 1.G vann í strákaflokki og 3.U vann í stelpuflokki. Hvað er á döfinni? Það verður blakmót eftir áramót. Þar munu úrslit ráðast í bekkjarkeppninni um Íþróttameistara skólans. Ætlið þið að vera með einhverjar nýjungar í vetur? Það er ekki planið en það er aldrei að vita! Veistu hvaða ár ÍMA var stofnað? Ekki hugmynd! Hver er tilgangur félagsins? Hann er að efla íþróttalíf innan skólans. Hver vinnur Íþróttameistarann í ár? Mér finnst mjög líklegt að 3. X taki þetta. Ertu að æfa einhverja íþrótt? Já, ég er að æfa fótbolta með KA. Af hverju vildir þú ekki vera nakinn í myndatökunni fyrir ÍMA? Af því að mér finnst mjög asnalegt að vera nakinn í myndatöku! Ef þú mættir velja (hvorugt er ekki valmöguleiki) hvort myndir þú sofa hjá Bjarna eða Siguróla? Ég myndi velja Siguróla. Pálína Dagný Guðnadóttir Pálína Dagný Guðnadóttir, eða Pála eins og hún er oftast kölluð, úr 4. F er formaður Leikfélags MA. Þetta er hennar fyrsta ár sem formaður LMA en hún hefur tekið þátt í starfsemi LMA öll árin sem hún hefur stundað nám við skólann. Í fyrsta bekk sá hún um hárgreiðsluna, í öðrum bekk lék hún álf í Draumi á Jónsmessunótt og í þriðja bekk lék hún Hörpu Sjöfn í árshátíðaratriðinu. Pála svaraði nokkrum spurningum fyrir okkur um starfsemi félagsins og fleira. Hver er helsta ástæðan fyrir því að þú bauðst þig fram sem formann LMA? Ég er með nýjar hugmyndir fyrir félagið og mig langaði að gera eitthvað fyrir félagslíf skólans. Hverjir sitja með þér í stjórn LMA? Axel Ingi konsertmeistari, Gréta Kristín, sem allir ættu að þekkja úr Morfís, Elva Rún sem er með mér í 4. F og Sólveig úr 2. H. Hvað er á döfinni? Við erum að taka þátt í Leiktu betur. Fyrir þá keppni héldum við spunanámskeið og spunakvöldvöku, en á þeirri kvöldvöku var ákveðið hverjir myndu keppa fyrir hönd MA í Leiktu betur. Einnig ætlum við að vera með flott árshátíðaratriði og eftir áramót ætlum við að setja Kabarett á svið. Hvað er það helsta sem þið hafið gert í vetur? Við erum búin að halda spunanámskeið og spunakvöldvöku. Einnig tókum við þátt í Leiktu betur 8. nóvember s.l. þar sem lið MA varð í öðru sæti. Ætlið þið að vera með einhverjar nýjungar í vetur? Við gerðum rosalega mikið úr prufunum fyrir Kabarett sem við munum setja á svið eftir áramót. Þetta voru opnar prufur en það hefur ekki verið gert áður. Veistu hvaða ár LMA sýndi sitt fyrsta leikrit? Elstu upplýsingar sem ég hef eru frá árinu 1937. Þá var verkið Andbýlingarnir sett á svið og Árni Jónsson leikstýrði. Ef þú mættir velja, hjá hvaða íslenska leikara myndir þú sofa hjá? Úff, þetta er erfitt en ég held að ég myndi segja Hilmi Snæ. Myndir þú ráða Paris Hilton í uppfærslu LMA? Nei, alls ekki! Hver er þinn uppáhaldsleikari? Ég veit það ekki, enginn sérstakur. Stefnir þú á nám tengt leiklist? Það er aldrei að vita, ekkert ákveðið. Félagakynning ÍMA LMA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.