Muninn

Árgangur

Muninn - 01.08.2008, Blaðsíða 37

Muninn - 01.08.2008, Blaðsíða 37
37 Árið 2001 hóf mentorverkefnið Vinátta göngu sína á Íslandi. Verkefnið var fyrst í samvinnu við Háskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands og tvo grunnskóla í Reykjavík en undanfarin þrjú ár hefur Velferðarsjóður barna á Íslandi rekið það. Til að byrja með átti verkefnið að vera þriggja ára tilrauna– og þróunarverkefni en í dag hefur verkefnið fest sig í sessi hér á landi. Fyrirmynd mentorverkefnisins Vináttu kemur frá Ísrael en það hóf göngu sína fyrir rúmlega 30 árum þar. Markmiðið var að mentorar sem koma úr háskólum og framhaldsskólum áttu að eyða tíma með grunnskólabörnum sem búa á láglaunasvæðum og áttu að vera þeim jákvæð fyrirmynd. Frá Ísrael barst mentorverkefnið til fleiri landa, m.a. til Svíþjóðar árið 1997. Í öll þau ár sem mentorverkefnið hefur verið starfrækt í Svíþjóð hefur rúmlega helmingur barnanna verið innflytjendur. Þaðan kom sú hugmynd að þetta verkefni væri gott fyrir innflytjendur til að börnin fengju tækifæri til að kynnast menningu og öðlast betri tungumálakunnáttu. Markmið verkefnisins er fyrst og fremst það að háskóla- og framhaldsskólanemar veiti grunnskólanemendum stuðning og hvatningu. Mentorar eiga að vera börnunum góð fyrirmynd og börnin eiga að geta treyst sínum mentorum. Hugmyndin er að börnin fái tækifæri til að mynda tengsl við þroskaðan, fullorðinn einstakling utan fjölskyldu sinnar. Verkefnið á að leiða til aukins þroska beggja aðila og stuðla að auknu sjálfstrausti barna. Það er mjög mikilvægt fyrir barn að fullorðinn einstaklingur gefi því tíma og athygli og hafi áhuga á því sem barnið er að gera. Því miður njóta ekki öll börn þeirra forréttinda að eiga náin tengsl við foreldra sína eða að hafa aðgang að félagsskap ábyrgra einstaklinga en þessi tengsl eru talin nauðsynleg fyrir börn til að byggja upp jákvæða sjálfsmynd og gott sjálfstraust. Fyrir þessi börn er mentorverkefnið Vinátta mjög góður kostur til að efla sjálfsmyndina og sjálfstraustið, rannsóknir hafa nefnilega sýnt að þrátt fyrir að foreldrar barna geta ekki veitt þeim þessi tengsl þá getur verið nóg að barnið hafi átt traustan tengslaaðila í lengri eða skemmri tíma í æsku. Fyrir mentora er þetta verkefni talið vera gott til að leyfa þeim að kynnast því að starfa með börnum, skipuleggja uppbyggjandi fundi fyrir börnin, öðlast nýja reynslu og þekkingu og þroska sköpunarhæfni sína. Verkefnið er hugsað fyrir börn á aldrinum 7 – 10 ára. Þau börn sem ganga fyrir í þessu verkefni eru t.d. börn sem hafa orðið fyrir einelti, börn sem einangra sig eða passa illa í hópinn, einbirni eða börn úr stórum systkinahóp, börn með ýmis hegðunarvandamál, börn sem vantar föður- eða móðurímynd, börn af erlendum uppruna, börn sem eru óframfærin og feimin. Það hefur sýnt sig að þetta verkefni hefur stuðlað að því að börn sem hafa átt í erfiðleikum með samskipti eiga auðveldara með það eftir verkefnið. Börn sem hafa tekið þátt í þessu verkefni eru talin vera með betri félagslega færni og aukna samskiptahæfni, einnig hafa þau börn sem eru af erlendum uppruna tekið framförum í íslenskukunnáttu sinni. Skilyrðin fyrir mentora eru að þeir hafi náð 18 ára aldri, að þeir hafi áhuga á verkefninu, þeir þurfa að geta skuldbundið sig verkefninu og gefið þrjá tíma á viku í það, þurfa að vera ábyrgir en fyrst og fremst eru mentorarnir mest metnir eftir umsókn sem þeir þurfa að skila inn. Mentorverkefnið er starfrækt í báðum framhaldsskólunum á Akureyri og er í samstarfi við fjóra grunnskóla, þeir eru Oddeyrarskóli, Giljaskóli, Glerárskóli og Síðuskóli. Í ár er Menntaskólinn á Akureyri að taka þátt í mentorverkefninu Vináttu í áttunda skiptið. Verkefnið er sett upp sem heilsársáfangi og fást þrjár einingar fyrir hann. Það eru 13 nemendur af öllum brautum að taka þátt í mentorverkefninu hér í MA. Ég talaði við nokkra nemendur sem eru að taka þátt í verkefninu og spurði þá nokkurra spurninga. Ástæðan fyrir þátttöku í verkefninu var aðallega sú að nemendur langaði að prófa eitthvað nýtt og spennandi. Margir vildu öðlast frekari reynslu af börnum og fannst það krefjandi að þurfa að finna eitthvað skapandi að gera fyrir börn á þessum aldri. Það sem mentorarnir hafa lært af þessari reynslu er aðallega það að þurfa að setja sig í spor 7 – 10 ára barna og reyna að finna út það sem þeim þykir skemmtilegt að gera. Hingað til hefur verkefnið gengið vel hjá langflestum Mentorunum og finna þeir börnin vera að koma smátt og smátt úr skelinni. Þau eru að byrja að kynnast betur og sjá flestir fram á góðan vetur með börnunum sínum. Verkefnið hefur farið vel af stað hjá mentorunum í MA og hafa margir gert eitthvað skemmtilegt með börnunum sínum. Þau hafa farið í göngutúra, bakað, á kaffihús, í keilu, í bíó og svo mætti lengi telja. Mentorar hafa tvisvar hist allir saman með börnum sínum, fyrst horfðu allir saman á bíómynd upp í MA og svo var jólastund mentora haldin mánudaginn 24. nóvember. Þá hittust allir mentorar upp í VMA, þar sem þeir bjuggu til jólasultu og skreyttu krukkur. Heimildir eru fengnar af www. vinatta.is, þar er hægt að kynna sér verkefnið betur og einnig sent fyrirspurnir til starfsfólks verkefnisins. Heiða Berglind Magnúsdóttir Er síminn til þín? Lifðu núna Settu flottan síma í jólapakkann Nokia 5310 Xpress Music 0 kr. út 1.000 kr. inneign á mán. í 12 mán. Þú greiðir 0 kr. út og 3.000 kr. á mán. í 12 mán. eða staðgreiðir 34.900 kr. Nokia 2630 0 kr. út 1.000 kr. inneign á mán. í 12 mán. Þú greiðir 0 kr. út og 1.500 kr. á mán. í 12 mán. eða staðgreiðir 15.900 kr. Nokia 1680 0 kr. út 1.000 kr. inneign á mán. í 12 mán. Þú greiðir 0 kr. út og 1.500 kr. á mán. í 12 mán. eða staðgreiðir 12.900 kr. F í t o n / S Í A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.