Muninn - 01.08.2008, Blaðsíða 13
Egill Logi Jónasson
Egill Logi Jónasson úr 4. AB er
formaður Tónlistarfélags MA. Þetta
er fyrsta árið sem Egill Logi er
formaður TóMA. Við spurðum hann
nokkurra spurninga um starfsemi
félagsins og fleira.
Hver er helsta ástæðan fyrir því að
þú bauðst þig fram sem formann
TóMA?
Það var enginn búinn að bjóða sig
fram og mér fannst töff að vera
formaður. Mig langaði líka að gera
eitthvað skapandi fyrir skólann þar
sem þetta er nú síðasta árið mitt í
skólanum.
Hverjir sitja með þér í stjórn
félagsins?
Fulltrúi 1. bekkjar er Almar Daði
Kristjánsson, fulltrúi 2. bekkjar er
Jón Már Ásbjörnsson, fulltrúi 3.
bekkjar er Ninna Rún Pálmadóttir
og fulltrúi 4. bekkjar er Elín Rún
Birgisdóttir.
Hvað er það helsta sem þið hafið
gert í vetur?
Það vantar ennþá dagsetningu fyrir
kvöldvökuna en vonandi tekst að
halda hana fyrir útgáfu blaðsins.
Hvað er á döfinni?
Það stendur til að hafa TóMA
kvöldvöku, við myndum láta kosta
örlítið inn til að safna pening.
Af því að það gengur svo illa
að safna núna út af ástandinu.
Hljómsveitakeppnir yrðu svo í
framhaldinu ef að vel tekst að
safna pening.
Ætlið þið að vera með einhverjar
nýjungar í vetur?
Já, ef ég held Stiðarvauk þá er
mögulegt að hann verði haldinn í
Gamla salnum til að hafa smá krútt
og notalegheit.
Veistu hvaða ár TóMa var stofnað?
Pff, nei!
Æfir þú á eitthvert hljóðfæri? Ef
svo er, hvaða?
Já, ég æfi á rafbassa.
Ef þú gætir fengið hvaða
hljómsveit sem er til að spila í
kvosinni, hver yrði fyrir valinu?
Hmm, ætli ég myndi ekki velja The
Stooges.
Tónlistasmekkur?
Uppáhaldshljómsveit?
Það er nú svo margt. Til dæmis 80‘s
og 60‘s tónlist, popp pönk, proto-
ponk, Zombies, Gang of four og
fleira.
Sindri Geir Óskarsson
Sindri Geir Óskarsson úr
3. G er formaður félags
áhugaljósmyndara í MA.
Þetta er fyrsta árið hans sem
formaður, reyndar er hann fyrsti
formaður félagsins í einhver ár.
Við spurðum hann nokkurra
spurninga um starfsemi félagsins
og fleira.
Hver er helsta ástæðan fyrir
því að þú bauðst þig fram í
formannsstöðuna?
Ég var mjög bitur í fyrra af því
að það var ekkert að gerast í
félaginu. Þannig að ég ákvað að
gera eitthvað mikið í ár. Í fyrra
var 50 ára afmæli félagsins og þá
var ekkert í gangi þannig að við
ætlum að bæta fyrir það núna og
halda t.d. ljósmyndasýningu.
Hverjir sitja með þér í stjórn
félagsins?
Jóhanna Stefánsdóttir
varaformaður, Krista Björk, Helga
Margrét og Axel.
Hvað er það helsta sem þið hafið
gert í vetur?
Við erum búin að halda námskeið
fyrir byrjendur og síðan verður
ljósmyndaferð í lok nóvember.
Hvað er á döfinni?
Já, það eru alla vega tvö námsskeið á vorönn og vonandi þrjár
ljósmyndaferðir. Dæmi um ljósmyndaferð er að mig langar að fara
með krökkum og skoða norðurljósin, kenna þeim að taka myndir af
norðurljósunum. Einnig stefnum við á að halda ljósmyndasýningu á
ganginum á milli Gamla skólans og Hóla.
Ætlið þið að vera með einhverjar nýjungar í vetur?
Allt sem fyrr hefur verið nefnt.
Veistu hvenær FálMA var stofnað?
Já, það var 1967.
Er nauðsynlegt að eiga flotta myndavél til að vera meðtekinn í FálMA?
Alls ekki, það eru sumir með rosalega flottar myndavélar en aðrir eru
með venjulegar. Þannig að það skipir engu máli.
Hvernig tekur fólk því þegar þú mætir með myndavélina? Forðar það
sér eða pósar?
Það er rosalega mismunandi. Stundum þarf maður að biðja fólk um að
vera rólegt en yfirleitt er það ekkert mál.
Karen Jóhannsdóttir
Karen Jóhannsdóttir úr 4. AB er formaður dansfélags MA,
PríMA ásamt Brinu Bolladóttur. Þetta er fyrsta árið hennar
sem formaður félagsins. Áður en hún varð formaður þá sat
hún í stjórn félagsins í öðrum og þriðja bekk. Við spurðum
hana nokkurra spurninga um starfsemi félagsins og fleira.
Hver er helsta ástæðan fyrir því að þú bauðst þig fram
sem formann?
Ég er búin að vera í þessu félagi síðan ég byrjaði í skólanum
og mér finnst þetta mjög gaman.
Hverjir sitja með þér í stjórn félagsins?
Birna Bolladóttir, Sesselja Sigurðardóttir, Elva Friðjónsdóttir
og Líneik Þóra Jónsdóttir.
Hvað er það helsta sem þið hafið gert í vetur?
Við sýndum á félagakynningunni og á kvöldvöku. Við
vorum einnig með veglegt árshátíðaratriði.
Hvað er á döfinni?
Það verður örugglega breiknámskeið og svo verður
stór atburður á næstu önn. Við ætlum að halda
fyrstu freestyle keppnina sem hefur verið haldin utan
höfuðborgarsvæðisins.
Ætlið þið að vera með einhverjar nýjungar í vetur?
Já, freestyle keppnina.
Veistu hvenær PríMA var stofnað?
Ekki hugmynd, en það er alla vega 11 ára gamalt.
Fyrir hvað stendur PríMA?
EKKI prímadonnur í MA. Príma þýðir aðaldansari á einhverju tungumáli og
við höldum að þaðan komi nafnið, við erum samt ekki alveg vissar.
Ertu að æfa dans? Hvar?
Já ég er bæði að æfa og kenna í Point Studio.
Hefuru verið að æfa dans lengi?
Já ég æfði ballet í mörg ár þegar ég var lítil en ég byrjaði að æfa í Point
Studio þegar það var stofnað fyrir þremur árum.
Stefnir þú á frekara nám tengt dansi?
Já, samt ekki ákveðið hvaða nám.
Er nauðsynlegt að vera góður dansari til þess að geta skráð sig í PríMA?
Alls ekki, engan veginn.
Hver er þinn uppáhaldsdansari?
Dan Karaty, hann var alltaf dómari í So you think you can dance.
Heldur þú að So you think you can dance myndi slá í gegn á Íslandi?
Nei, engan veginn.
Huginn Ragnarsson og Sigmar
Huginn, Sigmar og Björn eru allir í þriðja bekk
og stofnuðu félagið SviMA í haust. Okkur fannst
tilvalið að taka viðtal við þá til að fræðast meira
um þetta nýja félag í MA.
Af hverju stofnuðuð þið félagið SviMA?
Af því að okkur langaði að koma með eitthvað
nýtt, við vorum komnir með leið á „sketchum“
bara með Jóni Má, gangavörðunum og
Sverri Páli. Okkur fannst vanta umfjöllun um
félagslífið í skólanum. Það vantaði líka eitthvað
gott grill t.d. video með heitum sleikum og
svona, en sá draumur hefur ræst.
Hverjir sitja í stjórn SviMA?
Við erum eiginlega bara þrír í SviMA, Sigmar,
Huginn og Björn. Samt getur fólk sent okkur
„sketcha“ til að sýna ef það vill eða komið með
hugmyndina og við framkvæmum hana.
Hvað er það helsta sem þið hafið gert í vetur?
Við erum búnir að sýna eitt myndband og
taka upp fullt af efni sem á eftir að sýna.
Einnig erum við með mikið af hugmyndum
af „sketchum“ sem á eftir að taka upp. Okkur
vantar flugvél til að framkvæma einn „sketch“
en það verður gert þegar við fáum pening, það
er bara allt svo erfitt í efnahagsástandinu eins
og það er í dag.
Hvað er á döfinni?
Formaður Hugins bað okkur um að
hafa atriði á kvöldvöku sem á að vera
fyrir jól og líka á kvöldvöku sem verður
á vorönninni.
Fyrir hvað stendur SviMA?
Nafnið kom eiginlega á undan
félaginu. Við vorum að rölta og okkur
datt í hug að stofna félag sem héti
SviMA. Okkur fannst svo svalt að
stofna „sketcha“ og Video félag MA,
þá var nafnið og félagið komið.
Ætlið þið að vera með myndavélina
á lofti í allan vetur til þess að ná
einhverjum svæsnum myndum af
samnemendum?
Já, við reynum það alla vega. Við
reynum sérstaklega að vera með
myndavélina á uppákomum af ýmsu
tagi. Við þurfum samt eiginlega
alltaf að vera með hana til að ná
augnablikum eins og þegar gellan öskraði á
busana og skipaði þeim að þegja í Kvosinni.
Við þurfum að eiga svoleiðis á myndbandi en
maður getur ekki verið viðbúinn öllu, alltaf. Við
værum líka til í að gera raunveruleikaþátt um
okkur.
Yfirumsjón: Heiða Berglind Magnúsdóttir
Eftir að þið yfirgefið skólann, haldið þið að
einhverjir munu taka við félaginu af ykkur?
Við erum að vonast eftir því. Huginn: Mig
langar að skilja eitthvað meira eftir mig í
þessum skóla heldur en gat á veggnum á milli
Gamla skóla og Hóla.
TÓMA
FÁLMA
PRÍMA
SVIMA