Muninn - 01.08.2008, Blaðsíða 16
Þrífur þú bílinn þinn sjálf eða lætur þú einhvern annan gera það?
Ég hef aldrei gert það, pabbi gerir það.
Hvenær fórstu síðast í kirkju?
Man ekki , eða jú í giftingu hjá bróðir mínum í sumar.
Hefur þú hitt einhvern frægan?
Ég hef hitt fullt af frægu fólki, t.d. Brad Pitt á flugvellinum í Þýskalandi.
Á skalanum 1-10, hvað myndir þú segja að þú værir góð að keyra?
5, af því að ég bakkaði á í gær.
Ef þú mættir vera formaður hvaða félags sem er, hvaða félag væri
það?
Hmmm... félag á móti snípstuttum pilsum.
Hvort er Hildur Hauks eða Þorlákur meira krútt?
Þorlákur, ég dansaði við hann á árshátíðinni.
Hver er formaður Tóma?
Uuuu...Jón Már?!?
AFS á Íslandi
R A N G Á R V Ö L L U M · P Ó S T H Ó L F 9 0 · 6 0 2 A K U R E Y R I
BUSUN 2008
Þetta byrjaði allt með því að ég var
rifinn upp úr rúmi sem ég hafði
aldrei sofið í áður og ekki nóg
með það heldur þá svaf karlmaður
nánast nakinn mér við hlið. Ég var
lengi að átta mig á því hvar ég var
og hvernig ég hefði komist þangað.
Eftir að ég náði áttum og fattaði
að ég var staddur á Rhodos þá var
ég dreginn á fund. Mér skilst að ég
hafi í fávitaskap mínum komið mér
í stjórn busunar. Í fyrstu bölvaði
ég sjálfum mér fyrir of mikið
mjókurþamb kvöldið áður en eftir
fundinn þegar rætt hafði verið um
hvað til stóð að gera við busana
okkar þá leið mér strax betur.
Þarna sat ég með
snillingunum Þóru, Fannari, Pétri,
Erlu og Kára. Við ræddum hvað við
ættum að gera við þessi busaógeð
og hvernig við gætum gert þessa
upplifun ógleymanlega. Nasistinn
hún Þóra vildi helst bara lóga
þeim öllum og segja það gott en
hjartagullið hann Pési hélt því fram
að Jón Már myndi eflaust ekki leyfa
það. Eftir dágóðar vangaveltur og
nokkra fundi, sem náðist þó aldrei
100% mæting á, því þetta var á
Rhodos og heilsan ýmist ekki í topp
standi eða enginn gat vakið Pésa,
þá vorum við komin með ansi góða
hugmynd sem allir voru sáttir við.
Þegar við komum til Íslands
fórum við strax að skipuleggja.
Eftir blóð og svita þá náðum við að
redda sem flestu og allt gekk vel
fyrir utan við það að ég fékk skróp í
íþróttum.
Nokkrir aumingjar sem
ekki vildu hlýða reglunum voru
einfaldlega teknir í gegn og
plastaðir. Dansarnir voru snilld,
þar var 4.AB með rosalega sýningu
og rapegríman hans Gússa kom
að góðum notum. 4.X var með
flottustu búningana að mínu mati
en 4.TU var bara svo fallegur að
busarnir skiptu eignlega engu
máli. Þegar litlu ræpukögglunum
var smalað í stíuna þá magnaðist
svitalyktin og dreifðist um allan
skólann og busaþefurinn var fastur
í viðinum í gamla skóla fram í
nóvember.
Eftir öskur, læti , réttir
og bílaþvott þá voru þau vígð og
lögðu svo í gönguna niður í bæ. Þar
sýndum við þeim búðina sem ekki
má segja frá og þar fékk ónefndur
Óli sér gott mjólkurglas og rúllaði
svo í burtu með stíl. Stefnan var
síðan tekin á torgið og hókí pókí
dansinn stiginn. Einhver gella
slasaðist svo Fúsi sjúkrabíll fór með
hana heim og lagaði hana til. Gamli
góði menntavegurinn var genginn
og þar litu flest allir busar niður.
Að lokum tók svo stjórnin busana
á fund og gaf þeim kleinur frá því í
fyrra og dropa af kókómjólk.
Frábær busun hjá frábærum
böðlum.
Sölvi Rúnar Vignisson
P.S. Mjólk er góð!
,,RAPEGRÍMAN HANS GÚSSA KOM AÐ GÓÐUM
NOTUM”