Ský - 01.04.2003, Page 9
bíó
mokkar
fólk
skart
tónlist
bækur
tíska
börn
matun
box
'!
Sf|f| I f ' f*"5 W á
. riV'-M - 9 1
Hún er hörundsbjört, með svart hár og tindrandi augu. Ester
ThalTa Casey lítur út eins og keltnesk kvenhetja, enda er
hún írsk í föðurættina. Leiklistin er hinsvegar rík í íslenskri
nóðurættinni. Amma var engin önnur en Bríet Héðinsdóttir
°g móðursystir er Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Ester
Thalía sleikir sólina úti á kaffihúsi með ískaldan límonaði-
hjór. Hún var að útskrifast úr leiklistarskólanum og sumarið
°g öll framtíðin er framundan. „Veturinn er ennþá óráðinn, en
®g er að fara að leika í Grís í sumar. Það er óneitanlega
Þægileg tilhugsun að geta farið beint að vinna eftir skólann.
fg verð þar í tveimur hlutverkum, sem kennarinn, fröken
Lynn, og Patsy, óþolandi kiappstýran.” Þau liggja vel fyrir
henni þar sem hún er fyrrverandi söngkona hljómsveitar-
ir|nar Bang Gang. „Þrátt fyrir að leiklistin sé fyrsta ástin mtn,
þá er ég ekki búin að gefa poppstjörnudraumana alveg upp
ú bátinn. Ég er með tvö lög á nýju Bang Gang-plötunni sem
er að koma út í Frakklandi og svo geng ég með þá hugmynd
í maganum að gera eigin plötu. Með gömlum djass- og dæg-
urlögum,” segir Ester. Thalta er fallegt og óvenjulegt nafn.
Hvaðan kemur það? „Mamma og pabbi voru hippar og skírðu
mig í höfuðið á kvikmyndapersónu. Annars er nafnið upp-
runaiega grískt og var nafnið á leiklistargyðjunni. Þetta er í
rauninni hrikalegt nafn að standa undir, því Ester þýðir
stjarna," segir hún og hlær dátt. En hvernig er að vera barna-
barn Bríetar Héðinsdóttur? „Amma er náttúrlega fyrirmyndin
mín. En það tók mig langan tíma að viðurkenna fyrir sjálfri
mér og öðrum að ég vildi verða leikkona. Ætli þettta hafi
ekki verið hræðslan við að vera of hégómleg.” Hvað um
draumahlutverk? „Öll hlutverk eru draumahlutverk. Manni
þykir svo vænt um hlutverkið sitt í hvert skipti. í rauninni er
það erfiðasti hlutinn af því að vera leikkona, að festast ekki
of mikið bæði í hlutverkinu og í þeim litla heimi sem við lifum
í á meðan æfingum stendur. Að skilja vinnuna frá hinu venju-
lega llfi." AMB
Ljósmynd: PflLL STEFÁNSSON