Ský - 01.04.2003, Side 56
[ VIÐARKLÆONINGAR 1
mmm
eibSÉíÍI
HUGLEIÐINGAR UM VIÐARKLÆÐNINGAR
Það hefur verið mjög móðins undanfarin misseri að brjóta upp útlit al-
eða steinklæddra bygginga með við, sem vill svo gjarnan láta hratt á sjá.
Hér sést glögglega mismunurinn á veðrun þess hluta viðarklæðningarinnar sem er óvarinn fyrir veðri og
vindum annars vegar og hins var þess hluta sem er í skjóli. Byggingin er Hjúkrunarheimilið Sóltúni.
Höfuðstöðvar deCODE í Vatnsmýrinni eru annað dæmi um hvernig viðarklæðning gránar á skömmum tíma
ef viðhaldi er ekki sinnt.
Fyrir utan sjónræn gildi er eitt mikilvægasta
hlutverk utanhússklæðninga að verja bygg-
ingar fyrir veðrum og vindi. Þetta á ekki sfst
við þar sem saman fer úrkoma og hvass
vindur, það er að segja slagregn.
Viðarklæðningar hafa verið notaðar mjög
lengi á íslandi. Fyrstu timburhúsin sem risu
hér á landi voru klædd með viðarklæðning-
um. Sumum þessarra húsa hefur verið hald-
ið við í nánast upprunalegu horfi fram til
dagsins í dag. Sem dæmi má nefna Mennta-
skólann í Reykjavík og hús Bjarna Sívertsen
í Hafnarfirði.
Notkun viðarklæðninga utanhúss felur að
sjálfsögðu í sér viðhald, rétt eins og annarra
kleeðninga. Umfang þess er hins vegar háð
ansi mörgum þáttum og má þar nefna efnis-
val, yfirborósmeðhöndlun, ýmis konar
deilifrágang klæðninga og festingar.
Þegar notkun viðarklæðninga færist í
vöxt er eölilegt að spurningar um endingu
og viðhald komi fram. Ending og viðhald fara
að gjarnan eftir því hvort byggingaraðila
hefur tekist að velja rétt efni á réttan stað.
Eðlilega fellur það f hlut framleiðanda að
vanda sérstaklega til efnisvals í klæðningar.
Lega árshringja í viðnum getur t.d. haft
veruleg áhrif á endingu og þar ræður mestu
hvernig klæðningin er söguð úr trjábolnum.
Hlutverk hönnuða getur einnig verið tals-
vert þegar ákveða þarf uppsetningu, yfir-
borðsmeðhöndlun og deilifrágang klæðn-
inga. Þáttur iðnaðarmanna er ekki minnstur
þar sem öll efnismeðferð á byggingastað og
uppsetning klæðninga er mikilvægur hlekk-
ur í endingu þeirra. Ekki er óalgengt aó hús-
eigendum finnist klæðningar endast illa og
eiga þá gjarnan við sjónræna hlið málsins.
Klæðningar veðrast (grána) og hætta þá í
sumum tilfellum að uppfylla væntingar um
útlit. Allir þeir áhrifaþættir á endingu klæðn-
inga sem nefndir hafa verið geta átt sinn
þátt í þessu en trúlega er algengast að ým-
ist sé upphaflegri yfirborðsmeðhöndlun eða
almennu viðhaldi ábótavant. Þó má ekki
gleyma því að sumum klæðningum er bein-
línis ætlað að grána og sýna ákveðin öldurn-
areinkenni.
Algengustu viðarklæðningarnar á íslandi
eru gerðar af barrtrjám (t.d. greni) og þá
ýmist sem sagað efni eða sem plötuklæðn-
ingar (krossviður). í seinni tíð hefur færst í
vöxt notkun á viðarklæðningum af stofni
lauftrjáa svo sem sedrusviöur og ýmsar
harðviðartegundir.
Viðarklæðningar utanhúss á íslandi geta
verið bæði hentugur og endingargóður kost-
ur. Til að svo megi verða þarf að vanda til
allra þátta f uppbyggingu þeirra og sinna
eðlilegu viðhaldi af kostgæfni.
Höfundur er Friðberg Stefánsson, byggingarverk-
fræðingur, sérfræðingur í burðarþolshönnun, brot-
fræði, trévirki og framkvæmdareftirliti.
Ljósmyndir. PRll STttRNSSON