Ský - 01.04.2003, Page 63
[ hOnnunarsýning í NIÍLANÓ 1
Veisla fyrir augað
Stærsta og fjölsóttasta húsgagnasýning heims, Salone del Mobile, er haldin í Mílanó í apríl ár
hvert. Á meðan á sýningunni stendur fyllist borgin af fólki sem ýmist röltir á milli sýningarstaða
í guðskaparblíðu eða hleypur í skjól undan vorrigningunni. Sýningin sjálf fer fram innan múra risa-
vaxins sýningarsvaeðis, sem kallast Fiera di Milano, en einnig eru í gangi í borginni fjölmargir og
ekki síður áhugaverðir viðburðir. Gallerý, veitingastaðir, hótel, búðir, gömul verksmiðjurými, alls
konar önnur húsakynni og húsasund hýsa þennan „óformlega” hluta sýningarinnar. Keppst er við
að ná athygli með hvers konar uppákomum og ekki síður með guðaveigum og dýrindis smábit-
um. Oft glittir í nafntogaða hönnuði og miklar tilfinningar svífa um í rammítalskri stemmningu.
Tinna Gunnarsdóttir hönnuður, var útsendari Skýja í Mílanó og kom til baka með þessa hönn-
unarveislu í farangrinum.
Prived Oca (tii vinstri)
HÖNNUÐIR: Humberto e
Fernando Campana
STÆRÐ: 100 x 60 x 240 sm
ÞYNGD: 200 kg
EFNI: Swarovski kristall og tágar
Cartes Blanches
HÖNNUÐUR: Frédéric Ruyant
Salvation Ceramics
HÖNNUÐIR: Constantin and
Laurene Leon Boym
EFNI: Notaðir postulínshlutir
STÆRÐ: 25-50 sm á hæð
Favela
HÖNNUOIR: Humberto og Fernando Campana
EFNI: Stólarnir eru framleiddir í brasilíska smábænum Santo Cristo,
þar sem innflytjendur hafa lifað af smíðum mann fram af manni.
Efniviðurinn er tekinn beint úr fátækrahverfunum Ifavelasl og stóll-
inn byggður upp stykki fyrir stykki, handlímdur og negldur saman.