Ský - 01.04.2003, Síða 69
Ef goðsögnin um afrtska karlmenn er rétt gefa afrískar konur þeim
ekkert eftir. Þær eru gyðjur hvernig sem á þær er litið. Kvenlegar,
háfættar og með stálrass. Þær vita að til að temja karlmann þarf
aó ögra honum kynferðislega. Aðdráttarafl liggur í hárinu, en ekki
vilja allar afrískar konur sætta sig við hrokkið hár örlaganna. Að
auki segir mér þeldökk hárgreiðslukona að afrfskt hár vaxi líka ein-
faldlega mjög hægt. Það er því af illri nauðsyn sem konurnar koma
á hárgreiðslustofurnar til að fá sér sexf greiðslur einu sinni í mán-
uði. Ung stúlka situr í hárgreiðslustól eins og tætt fuglahræða.
„Ekki taka mynd af mér fyrr en ég er tilbúin,” segir hún skipandi.
Hárgreiðslukonan tekur til við aö flétta f hana ekta hárlengingar frá
Indlandi sem munu endast f þrjár til sex vikur. Stúlkan horfir á speg-
ilmynd sína umbreytast og fríkka meðan reggae-tónlistin og kæru-
leysið fylla skilningarvitin. Hér er það tískan sem blífur. Hvort viltu
afró-fléttur sem liggja þétt við höfuðið og ná langt niður á bak eða
sexí hárlengingu með sixties svingi? Allir regnbogans litir ganga í
greiðslunum en fallegast þykir aó fá sér Ijósa lokka eóa Ijóst, stríp-
að hár til að skera sig úr fjöldanum.
AFRÍSKAR KONUR MEÐ INDVERSKT HÁR
Hárið er ekta, hér er allt ekta, bara mismunandi mikið ekta. „Afrísk-
ar konur eru með indverskt hár,” segir indverskur hársölumaður rétt
hjá Cháteau d'Eau-metróstöðinni. Hinum megin á hnettinum þvær
indverskt heittrúarfólk sér og rakar af sér hárið áður en það stígur
inn í allra helgustu musteri til bænaiökana. Hárinu er safnað sam-
an og það meöhöndlað á viðeigandi hátt áður en það er selt í stór-
um förmum til tískuborga heimsins; London, Parísar, New York og
Rómar. Indverski prinsinn minn brosir Ijúft í kvennafans og hvíslar
að mér gullmolum um hárskottin sín. í Afró-hverfinu hafa veggirnir
eyru og hljóð heyrast í mílufjarlægð. Blaðamanni með myndavél er
síst treystandi, enda Ifður ekki á löngu áður en þeldökkur maður
reynir aó flæma mig á brott. Mystíkin er alger og fljúgandi hárskott
eru í öllum hornum búðarinnar. Ung blökkustúlka reynir að finna sér
skott og verður starsýnt á Ijóslitað hár sem hún kaupir á 4.000 kr.
Það er gangverðið á skottunum, síðan kostar annað eins að láta
sauma þau við hárrótina. Það kostar því ríflega 8.000 kr. á mánuði
að vera afrísk gyðja með Ijósa lokka eins og Marilyn Monroe eða
með elegant hár að hætti Opruh Winfrey. Það besta er að hár-
greiðslan er svo til viðhaldsfrí, það þarf ekki að þvo hárið nema á
þriggja vikna fresti á stofu og kostar slíkt 1.500 kr. Eftir fjórar til
sex vikur er lokkunum sprett af og nýir saumaðir á í staðinn. Eftir
stendur að til að tolla í afrísku hártískunni þarf aö kosta tíl um
120.000 krónum árlega, ómældri fýrirhöfn og tímaeyðslu. „Beauty
knows no pain," gætu gyðjurnar hugsað í lok dags er þær hvíla ör-
magna en hárprúðar í faðmi elskhuga sinna. Og víst er eitthvað til
í því.
TJÚTTAÐ VIÐ VUITTON, GUCCI & DIOR
Brothætt lítil blökkustúlka í rauðum kjól, með fíngerðar afró-fléttur
og gulleyrnalokka fylgist með óhömdum fulloröinsheimi sem seinna
verður hennar. Dancing Queen ómar í hljómlausum hátölurunum og
barnið dansar í litríku afklipptu hári sem hylur gólfiö líkt og blóma-
breiður. Mamman tekur hana upp og treður organdi ofan í klæóis-
poka sem hún hefur á bakínu. Enginn kippir sér upp við neitt. Afró-
hárgreiðslustofurnar eru eins konar félagsheimili. Þar eru mæður
meö ungabörn á brjósti, smábörn, gelgjulegir unglingar og hrörleg
gamalmenni. Stórkostlegt kaos framandi menningar og yndislegs
fólks sem lætur eins og það eigi í mér hvert bein. Lyktin er þung og
heit. Kryddlegin frumskógarangan gæti einhverjum dottið í hug.
Svitinn perlar á hárgreiðslukonunum er þær hamast við að flétta. Á
meðan standa sterklegir blökkumenn eins og varðhundar fyrir utan
stofurnar og reyna að lokka inn viðskiptavini og einstaka túrista
sem vafra um hverfiö.
0T?'5MA
„Ljósir lokkar eru
flottastir því þá
sker ég mig úr
fjöldanum.”