Heilbrigt líf - 01.12.1958, Síða 63
ekki í flöskurnar. Ágætt er að stinga prjóni í tappann
eða hengja bjöllu um flöskuhálsinn, svo að flöskurnar
séu auðþekktar frá öðrum flöskum í björtu sem dimmu.
I baðherbergjum er einnig nauðsynlegt að fjarlægja
rakvélarhlöð, svo að barnshendur freistist ekki til þess
að handleika þau.
Einnig voru sýnd hjúkrunargögn til þess að nota við
hjálp í viðlögum.
Auk þess var sérstök deild, sem sýndi sjúkragögn frá
lánadeild Rauða Krossins. Voru þar margs konar tæki
frá sjúkrarúmi og hjólastóli að leguhringi og túðukönnu.
Slík tæki var unnt að fá að láni heini gegn vægri þóknun.
Rauði Krossinn rekur livíldarheimili, þar sem þreyttar
mæður geta dvalizt. Ilvíldarheimilið er við Sea Point.
Þar geta þær verið um þriggja vikna tíma án þess að
hafa áhyggjur af hörnum og eiginmanni. Rauði Krossinn
rekur einnig heimilishjálparþjónustu gegn lágu gjaldi.
Lokadeild sýningarinnar var frá ungliðadeildinni. Þar
gat að líta reglur um lieilbrigði og heilsusamlegt líferni.
Matvælakassar og föt, sem hörnin höfðu sjálf safnað og
áttu að sendast lil nauðstaddra, voru til sýnis. Sýndir
voru einnig húningar og hlutir, sem hörnin höfðn sjálf
útbúið. Þar gat að líta myndabækur, sem borizt höfðu
hvaðanæva að. 1 þeim voru myndir af dýrum, hlómum,
landslagi og þáttum úr daglegu lífi ættlands þeirra.
Meðal þeirra var ein myndabók frá Suður-Afríku, sem
senda átti í skiptum til skóla í Kóreu, Ameríku, Kanada,
Frakklandi, Hollandi og Ástralíu.
Á veggjum sýningardeildanna héngu myndir, sem sýna
átlu starfsemi liinna ýmsu deilda Rauða Krossins.
Ein mynd vakti sérstaka atliygli. Hún var frá Ástralíu og
var af tötrum ldæddum dreng. Andlit hans speglaði örvænt-
ingu og umkomuleysi. Sérhver mun finna sig knúðan
til þess að styrkja Rauða Krossinn til hjálpar slíku barni.
Lauslega þýtt úr Red Cross in South Africa.
Heilbrigt líf
61