Heilbrigt líf - 01.12.1958, Side 74
stöðugt að vera á verði gegn úlfum og bjarndýrum, sem
einkum sækjast í kálfana.
Alaskabúar veiða elginn sér til matar og safna kjötinu
til vetrarins.
Hreindýr.
I Alaska lifir hreindýrið. Einu sinni voru þessi hyrndu
dýr geysimörg, svo að sigling stöðvaðist stundum, meðan
hreinhjarðirnar fóru yfir Yukonána. Nú á dögum hefir
dýrunum fækkað, en samt eru þau flest villtra dýra þar.
Hreindýr reika óravegu til þess að ná í hreindýramosa,
sem er aðalfæða þeirra. Yitað er, að ein lijörð fór um
600 mílur, frá Fortymitesvæði lil Kotzebne við heim-
skautahafsströndina.
Síðhærði læminginn.
Meðal minnstu spendýra í Alaska er hinn örsmái, síð-
hærði læmingi. Þeir flytja sig með fárra ára millihili.
Fjölgi þeim um of á einhverju svæði, leggja þeir af stað
vestur á hóginn. Þá elta mörg dýr, sem herja á þá. Þeir
læmingjar, sem lifa af förina, lialda flakkinu áfram.
Læmingjar æða út á ísjaka og synda jafnvel frá einum
ísjaka til annars, þar til þeir gefast upp og drukkna.
Hin slæga gaupa.
Gaupan er eitt þeirra dýra, sem ráðast á læmingjana.
Hún er eina villikattategundin i Alaska. Hún líkist mjög
stórum, bröndóttum ketti. Felduriún er einstaklega mjúk-
ur og ljósgrár, en á eyrunum eru stórir brúsMr, sem
líkjast skúf. Þær halda sig í skógunum.
Sauðnautið.
Sauðnautið er sú dýrategund, sem hefir lifað af ísöld-
ina. Ilvalveiðimenn og verzlunarmenn stráfelldu sauð-
nautið fyrir tæpri öld. Smáhjörð var flutt af þeim frá
Grænlandi 1930. Dýrin voru sett á verndunarsvæði i Nurni-
72
Heilbrigt lif