Skinfaxi - 01.01.2016, Qupperneq 14
14 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Hreyfivika UMFÍ 22.–29. maí
Ætlar þú ekki örugglega að vera með?
Í ár fer Hreyfivika UMFÍ fram dagana
22.–29. maí. Hreyfivika UMFÍ er hluti af
stóru lýðheilsuverkefni sem fram fer um
gjörvalla Evrópu á sama tíma að frum-
kvæði International Sport and Culture As-
sociation (ISCA). Verkefnið hófst árið 2012 og
hefur þátttakan í Evrópu og á Íslandi verið
stigvaxandi frá ári til árs. Í fyrra náði UMFÍ
markmiðum sínum og gott betur því þá tóku
yfir 40.000 manns á 55 stöðum víðsvegar um
land þátt í verkefninu.
Sundkeppni sveitarfélaganna verður á sín-
um stað en sá viðburður tókst með miklum
ágætum í fyrra því þá syntu yfir 4000 manns
yfir 4000 km í 35 sundlaugum í 33 sveitar-
félögum. Sundkeppnin vakti mikla lukku og
vakti ekki síður athygli um alla Evrópu. Enda
varð verkefnið til á örskömmum tíma að til-
stuðlan Norðurþings og Fjallabyggðar og
úr varð stórskemmtilegur og fjölmennur
viðburður.
Í ár stefnum við á að gera enn betur og
erum komin í gott samstarf við Ölgerðina,
Kristal og Flórídana, og saman ætlum við að
fjölga þeim sem finna sína uppáhaldshreyf-
ingu enn frekar. Áður en vikan sjálf hefst er-
um við hjá UMFÍ boðin og búin til að heim-
sækja sambandsaðila, sveitarfélög, fyrirtæki,
stofnanir og alla þá sem hafa hug á þátttöku
og kynna Hreyfivikuna enn frekar.
Takið daginn frá!
Ungmennafélag Íslands, í samstarfi við
Reykjalund, stendur fyrir ráðstefnu á Reykja-
lundi föstudaginn 26. ágúst 2016. Yfirskrift
ráðstefnunnar er Hreyfing fyrir alla, mikilvægi
hreyfingar á efri árum. Boðið verður upp á
fræðsluerindi þar sem komið er inn á mikil-
vægi hreyfingar, styrktarþjálfun, þolþjálfun
og jafnvægi.
Að auki verður boðið upp á verklegar æf-
ingar í sal og sundlaug. Ráðstefnan er opin
öllum áhugasömum en leiðbeinendur og
starfsfólk sem starfar með einstaklingum 50
ára og eldri er sérstaklega velkomið. Nánari
upplýsingar veitir Ragnheiður Sigurðardóttir,
landsfulltrúi UMFÍ.