Skinfaxi - 01.01.2016, Síða 17
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 17
Ungmennaráðstefna UMFÍ
Haldin á Hótel Selfoss 16.–18. mars
D
agana 16.–18. mars sl. var ung-
mennaráðstefna UMFÍ, Ungt
fólk og lýðræði, haldin í sjöunda
skipti og í þetta sinn á Hótel
Selfossi. Þá voru liðnir um tíu
mánuðir frá því að við í ungmennaráðinu
settumst niður með Sabínu Steinunni lands-
fulltrúa UMFÍ til þess að ákveða þema ráð-
stefnunnar.
Þetta hljómar kannski ekki eins og flókið
verkefni enda úr fjölda málefna að velja. Það
varð samt eiginlega vandamálið. Ráðstefnan
fjallar um málefni ungs fólks og þau málefni
eru ansi fjölbreytt. Í rauninni eru það öll mál-
efni samfélagsins í heild sinni.
Eftir smástund rétti einn meðlimur ung-
mennaráðs hlédræg upp aðra höndina, bað
um orðið og viðurkenndi rólega að hún hefði
áhuga á því að við myndum fjalla um geð-
heilbrigði ungmenna. Umræðan um geðheil-
brigði var að aukast allverulega um þetta
leyti og við sannfærðumst fljótt um mikil-
vægi þess að fjalla um þetta mikilvæga mál-
efni. Svo þegar skýrsla Ríkisendurskoðunar
kom út í febrúar á þessu ári varð okkur ljóst
hversu alvarlegt málefnið væri í raun og veru.
Við tók tíu mánaða ferðalag í gegnum
undirbúning, ákvarðanatökur og umsóknar-
ferli fyrir styrki Evrópu unga fólksins sem er
langstærsti styrktaraðili ráðstefnunnar og
hjálpaði okkur til að láta hana verða að veru-
leika.
Þar komu styrkleikar ungmennaráðs UMFÍ
klárlega í ljós. Ráðið er uppfullt af gleði og
metnaði en í því koma saman mjög ólík ung-
menni sem öll hafa hæfileika á misjöfnum
sviðum. Það má því segja að við bætum hvert
annað upp og hjálpum hvert öðru til að
blómstra í því hlutverki sem UMFÍ hefur úthlut-
að okkur. Með dyggri leiðsögn og aðstoð
Sabínu, sem hefur í hlutverki sínu sem starfs-
maður ungmennaráðs algjörlega unnið hug
okkar allan og er hjarta hópsins út í gegn,
finnst okkur við hafa vaxið ár frá ári og hvert
verkefni sem við tökumst á við er stærra og
metnaðarfyllra en það sem á undan fór.
Ætti því engan að undra að ráðstefnan í
ár gekk framar vonum. Sá hópur ungmenna
sem kom saman á Selfossi til þess að ræða
geðheilbrigði og málefni líðandi stundar er
Aðalbjörn Jóhanns-
son, formaður Ung-
mennaráðs UMFÍ.