Skinfaxi - 01.01.2016, Qupperneq 25
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 25
Þ
átttakendur frá Vestmannaeyjum,
Ungmennafélaginu Óðni/ÍBV
frjálsar, hafa sett svip sinn á frjáls-
íþróttamótin innanhúss undan-
farin ár og svo var einnig á dög-
unum á Meistaramóti Íslands 15–22 ára sem
haldið var í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.
Karen Inga Ólafsdóttir, þjálfari krakkanna,
segir frjálsar íþróttir hafa fest sig í sessi í Vest-
mannaeyjum. Yngri flokkarnir eru orðnir svo-
lítið eldri og núna er að koma upp sterkur
hópur, búinn að vaxa, og krakkarnir þar um
18–20 ára að sögn Karenar Ingu.
Sáu gleðina
„Starfið er bara að vaxa eftir að við tókum smá-
pásu og ákváðum að byrja upp á nýtt. Það
kom mjög vel út og krakkarnir sáu gleðina
og njóta þess sem við erum að gera. Krakkar
á þessum aldri eiga það til að rokka á milli,
vita ekkert hvar þau eiga að vera, og hætta
öllu. Nú er hópurinn á þessum aldri, 15–17 ára,
hjá okkur vel yfir 20 talsins. Ég er mjög ánægð
og stolt af þessum krökkum og vonandi er
framtíðin björt með þeim,“ segir Karen Inga.
Fengu hitasjokk
– Við hvaða aðstæður búið þið úti í Eyjum?
„Við erum með 60 metra spretthlaupsbraut,
langstökksgryfju og kaststreng í Eimskips-
höllinni. Þarna höfum við ágæta aðstöðu,
hún er ansi köld en síðustu vikur fyrir mót
höfum við æft við -7C° niður í -14 C°. Krakk-
arnir fengu því hitasjokk að koma inn í þess-
ar aðstæður sem eru hér í Laugardalnum.
Heima í Eyjum, þegar er svona kalt í húsinu,
eru krakkarnir að æfa í tvennum buxum,
þremur peysum, húfu og vettlingum, og
viðbrigðin verða gífurleg að keppa í húsinu
í Laugardal.“
Karen Inga Ólafsdóttir,
frjálsíþróttaþjálfari:
Starfið á
bara eftir
að vaxa
og dafna
Áhugasamur hópur
– Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér í þessum
efnum?
„Hún er björt. Maður á alltaf að vera jákvæður
þegar maður býr í litlu bæjarfélagi þar sem
íþróttalífið byggist á fótbolta og handbolta.
Þessi hópur í frjálsum íþróttum er mjög
áhugasamur sem þýðir að þau vilja vera
áfram,“ segir Karen Inga.
Dugleg að taka þátt
Karen Inga segir Eyjaliðið duglegt að taka
þátt í meistaramótum auk sumarmótanna.
Hún segir þau ætla að bæta sig og taka þátt
í fleiri mótum sem standa til boða. Þau hafa
mikinn áhuga að taka þátt í Unglingalands-
mótinu í Borgarnesi en hópurinn ætlar að
fara á mót og í æfingabúðir í Svíþjóð í sumar.