Skinfaxi - 01.01.2016, Page 31
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 31
N okkrir félagar úr Skíðafélagi
Strandamanna fóru á dögun-
um í skíðaferð til Þýskalands
þar sem dvalið var í Braunlage.
Byrjað var að skipuleggja ferð-
ina í ágúst í fyrra, en tilgangur hennar var að
æfa sig á gönguskíðum. Ennfremur var farið
á skauta og svigskíðin prófuð.
Skemmtilegt að prufa svigskíði
„Það skemmtilegasta við ferðina var að
prufa að fara á svigskíði og lestarferðin var
Strandamenn skíðuðu í Þýskalandi
einnig eftirminnileg. Það var svo sem ekkert
öðruvísi að skíða í Þýskalandi en hér heima
nema hvað það er mikið af trjám í Þýska-
landi,” sagði Stefán Snær Ragnarsson, einn
af þátttakendunum í þessari vel heppnuðu
ferð sem tók fimm daga.
Auk Stefáns Snæs tóku þátt í ferðinni þau
Ragnar Bragason, Hilmar Tryggvi Kristjáns-
son, Kristján Hólm Tryggvason, Jón Haukur
og Friðrik Heiðar Vignissynir, Vignir Örn Páls-
son, Sigurbjörg Halldórsdóttir, Halldór Logi
Friðgeirsson og Rósmundur Númason.
Á
rsþing Ungmennasambands Eyja-
fjarðar var haldið í Þelamerkurskóla
16. mars sl. Þingið, sem var það 95. í
röðinni, var í umsjón Ungmennafélagsins
Smárans. Rétt til þingsetu áttu 44 fulltrúar
frá 13 aðildarfélögum UMSE. Af þeim
mættu 33 fulltrúar. Þingið var líflegt að
venju og urðu m.a. góðar umræður um
hlutverk og stefnu sambandsins.
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, var
gestur þingsins og sæmdi m.a. Þorgerði
Hauksdóttur starfsmerki UMFÍ. UMSE
sæmdi nokkra félaga heiðursviðurkenn-
ingum. Guðrún Sigurðardóttir, Umf. Svarf-
dæla, Elín B. Unnarsdóttir, Sundfélaginu
Rán, Gestur Hauksson, Umf. Smáranum,
Ásgeir Már Hauksson, Umf. Smáranum,
og Ingunn Aradóttir, Umf. Smáranum,
voru öll sæmd starfsmerki UMSE. Níels
Helgason og Gísli Pálsson voru sæmdir
gullmerki UMSE fyrir ævistarf sitt í þágu
íþrótta- og ungmennafélagsmála. Ung-
mennafélag Svarfdæla hlaut félagsmála-
bikar UMSE fyrir starfið á árinu 2015.
Líflegar umræður um hlutverk og stefnu sambandsins
Bjarnveig Ingvadóttir, Umf. Svarfdæla, var
endurkjörin formaður UMSE, Sigrún Finns-
dóttir, Umf. Smáranum, var endurkjörin ritari
og Þorgerður Guðmundsdóttir, Umf. Samherj-
um, endurkjörin meðstjórnandi. Í varastjórn
var Guðrún Sigurðardóttir, Umf. Svarfdæla,
endurkjörin og samkvæmt tillögu uppstilling-
arnefndar voru Björgvin Hjörleifsson, Skíða-
félagi Dalvíkur, og Elvar Óli Marinósson,
Umf. Reyni, einnig kjörnir í varastjórn.
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, sæmdi
Þorgerði Hauksdóttur starfsmerki UMFÍ.
Þingfulltrúar á árs-
þingi UMSE njóta
veitinga í þinghléi.
Hluti hópsins tekur sér
smápásu áður en lagt
er í hann aftur.
Vatnssopi í sólinni í Þýskalandi.