Skinfaxi - 01.01.2016, Page 37
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 37
K
vennalið Stjörnunnar í handknattleik
varð bikarmeistari í sjöunda sinn þegar
liðið lagði Gróttu í úrslitaleik í Laugardals-
höllinni 27. febrúar sl. Stjarnan var yfir í hálf-
leik, 10:7, en lokatölur urðu 20:16. Síðari hálf-
leikur var lengstum í jafnræði en þegar tíu
mínútur voru til leiksloka var staðan 15:14
fyrir Stjörnuna. Garðabæjarliðið var sterkara á
lokasprettinum og tryggði sér að lokum fjög-
urra marka sigur. Þórhildur Gunnardóttir og
Sólveig Lára Kjærnested voru markahæstar
hjá Stjörnunni með 5 mörk hvor. Hjá Gróttu
var Laufey Ásta Guðmundsdóttir markahæst
með 4 mörk og Lovísa Thompson og Þórey
Anna Ásgeirsdóttir gerðu 3 mörk hvor.
STJARNAN VANN BIKARINN Í 7. SINN
V
aldimar Leó Friðriksson var endur-
kjörinn formaður UMSK á 92. árs-
þingi sambandsins sem haldið var í
íþróttamiðstöðinni í Laugardal 24. febrúar
sl. Valdimar Leó hefur verið formaður
sambandsins síðan árið 2000. Öll stjórn
UMSK var einnig endurkjörin.
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri UMFÍ,
var gestur fundarins og veitti Valdimar
Leó Friðrikssyni og Snorra Olsen gullmerki
UMFÍ. Auk þess fengu Steinar Lúðvíks-
son, Sæmundur Hafsteinn Jóhannesson,
Hannes Strange og Þórður St. Guð-
mundsson afhent starfsmerki UMFÍ.
Á þinginu voru veittar viðurkenningar
til sjálfboðaliða og til íþróttamanna.
Íþróttakarl UMSK 2015 var valinn sund-
maðurinn Jón Margeir Sverrisson og
íþróttakona Fanney Hauksdóttir lyftinga-
kona. Lið ársins var valið kvennalið Stjörn-
unnar í hópfimleikum. Viðurkenningar
hlutu sundmaðurinn Brynjólfur Óli Karls-
Valdimar Leó og Snorra Olsen veitt gullmerki UMFÍ
son, Breiðabliki, skíðakonan Erla Ásgeirs-
dóttir, Breiðabliki, frjálsíþróttamaðurinn
Sindri Hrafn Guðmundsson, dansparið Gylfi
Már Hrafnsson og María Tinna Hauksdóttir
og fimleikakonan Norma Dögg Róberts-
dóttir, Gerplu.
Félagsmálaskjöldinn fékk Guðmundur
Oddsson GKG.
Valdimar Leó Friðriksson, formaður UMSK, ásamt Jóni Margeiri Sverrissyni,
íþróttakarli UMSK, og Kristínu Finnbogadóttur sem tók við viðurkenningum fyrir
Fanney Hauksdóttur, íþróttakonu UMSK.