Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2020, Síða 11

Skinfaxi - 01.01.2020, Síða 11
 S K I N FA X I 11 „Ég fór með vinum mínum í grunnskóla í skólabúðirnar á Reykjum og man enn hvað það var skemmtileg upplifun. Ég vildi vinna meira með börnum og vildi endilega fara á Laugarvatn þegar okkur stóð það til boða í háskólanáminu okkar,“ segir María og heldur áfram: „Þegar ég var á Reykjum velti ég því auðvitað ekkert fyrir mér hvað væri á bak við alla leikina. Nú erum við búin að læra það og vitum af hverju við áttum að gera hitt og þetta.“ Þær Margrét og María höfðu nóg að gera í Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni. Þær voru í búðunum í tvær vikur, komu á mánudegi og fóru svo á föstudegi eins og nemendurnir. Þær komu síðan aftur eftir helgina og voru út þá viku með öðrum nemendahópi. Þær tóku virkan þátt í starfinu í Ungmennabúðunum, skipulögðu útileiki og samskipta- leiki, og leiki í íþróttasal, svokölluðum speglasal, og kvöldvökur. Þær héldu dagbók tengda dvölinni og urðu að skila skýrslu til kennara síns að náminu loknu. „Það voru alltaf að bætast við verkefni hjá okkur. En við lærum meira af því. Hér svo heimilislegt að okkur líður mjög vel,“ heldur María áfram. Nemendur, sem dvelja í Ungmennabúðum UMFÍ, hafa nóg að gera dagana fimm sem þeir dvelja þar með kennara. Farið er í ýmsa leiki á hverjum degi, bæði úti og inni. Þegar frystir og viðrar til þess fara nemendurnir á skauta. Fjöldi kajaka er til í Ungmennabúðunum og ef ekki er ís á vatninu (Laugarvatni) er hægt að sigla út á þeim. Síðasta kvöldið í Ungmennabúðunum er heljarfjör, meðal annars sundlaugarpartí. • Ungmennabúðir UMFÍ hófu starfsemi sína á Laugum í Sælingsdal í Dalabyggð í byrjun árs 2005. Starfsemin var flutt að Laugarvatni árið 2019. • Ungmennabúðir UMFÍ eru fyrir nemendur í 9. bekk grunnskóla. Nemendur eiga möguleika á að dvelja þar frá mánudegi til föstudags við leik og störf. • Viðburðir í búðunum eru í formi námskeiða sem tengjast meginstoðum UMFÍ. Þær eru menning, útivist, hreyfing og félagsfærni. Markmiðið með dvölinni er að styrkja félags- færni ungmenna og efla vitund þeirra fyrir umhverfi sínu og samfélagi ásamt mikilvægi þess að hafa heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi. • Árlega koma um 1.800 ungmenni í Ungmennabúðir UMFÍ.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.