Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2020, Síða 23

Skinfaxi - 01.01.2020, Síða 23
 S K I N FA X I 23 Heilbrigðisráðuneytið, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðu- neytið, hefur sent frá sér leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmörku- num á skólastarfi vegna farsóttar þegar kemur að íþrótta- og æskulýðs- starfi barna, ungmenna og fullorðinna. Hvað varðar íþróttastarf barna og ungmenna er eftirfarandi beint til íþróttahreyfingarinnar: „...að virtum þeim sjónarmiðum og skýringum sem fram hafa komið af hálfu ÍSÍ og ýmissa annarra samtaka sem sinna íþrótta- og æskulýðsstarfi mælast heilbrigðisráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneyti til þess að hlé verði gert á öllu íþrótta- og æskulýðsstarfi barna og ungmenna, sem felur í sér blöndun hópa, nálægð við aðra og snertingu, þar til tak- mörkun skólastarfs lýkur.“ Hvað varðar íþróttaiðkun fullorðinna er eftirfarandi beint til til íþrótta- hreyfingarinnar: „...er þeim tilmælum beint til ábyrgðaraðila og skipuleggjenda annars íþrótta- og æskulýðsstarfs að með sama hætti verði gert hlé á starfi sem felur í sér snertingu eða nálægð milli iðkenda sem er minni en 2 metrar, í samræmi við þær meginreglur sem fram koma í auglýsingu um takmörkun á samkomum og á meðan þær takmarkanir eru í gildi.“ Jafnframt hvetja ráðuneytin skipuleggjendur íþróttastarfs til að halda uppi félagsstarfi með því að nýta sér tæknina til að halda utan um sína hópa og vera í sambandi við iðkendur og hvetja þá til virkni og hreyfingar eftir því sem við á. Eftirfarandi árétting barst frá sóttvarnalækni í dag í tilefni útgáfu leið- beinandi viðmiða frá heilbrigðisráðuneyti og mennta- og menningarmála- ráðuneyti: „Sóttvarnalæknir vill árétta að í auglýsingum heilbrigðisráðherra um samkomubann og um takmarkanir á skólastarfi er fjallað um að nálægð einstaklinga verði ekki minni en tveir metrar ef því verður við komið. Einnig er ljóst að með vísan í leiðbeiningar um almennar sóttvarnaráðstafanir, t.d. varðandi hreinlæti og smitleiðir, að sameiginleg notkun á hvers konar búnaði til íþróttaiðkunar, boltum, dýnum, rimlum, handlóðum, skíðalyftum og mörgu fleiru, án góðrar sótthreinsunar á milli notkunar einstaklinga, er mjög varasöm og ekki í anda fyrirmæla um sóttvarnir. Því er augljóst að í flestum íþróttum er nánast ómögulegt að æfa eða keppa.Sóttvarnalæknir vill beina því til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands að, líkt og gert hefur verið varðandi börn og ungmenni, að tekið verði hlé í æfingum og keppnum á vegum sambandsins og aðildarfélaga þess á meðan samkomubann varir.“ (Birt á Facebook-síðu Almannavarna.) Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og UMFÍ treysta því að öll íþrótta- hreyfingin muni fara að þessum afgerandi tilmælum og að allt íþrótta- starf falli tímabundið niður. Þetta er augljóslega ekki auðvelt fyrir íþróttahreyfinguna en við þessar aðstæður er mjög mikilvægt að þjóðin standi saman sem einn maður og að íþróttahreyfingin sýni fulla samstöðu og ábyrgð. Við viljum jafnframt minna á mikilvægi þess að landsmenn haldi áfram að hreyfa sig þrátt fyrir að skipulagt íþróttastarf sé ekki til staðar. Þá er mikil- vægt að félögin haldi áfram að þjónusta iðkendur sína með þeim hætti sem mögulegt er, með fjar- og heimaæfingum. Fréttatilkynning frá ÍSÍ og UMFÍ 20.03.2020 Allt íþróttastarf fellur niður

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.