Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2020, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.01.2020, Blaðsíða 6
6 S K I N FA X I Skinfaxi 1. tbl. 2020 Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags Íslands (UMFÍ), hefur komið út samfleytt síðan árið 1909. Tímaritið dregur nafn sitt af hestinum fljúgandi sem dró vagn goð- sagnaverunnar Dags er ók um himin- hvolfið í norrænum sagnaheimi. R I TST J Ó R I Jón Aðalsteinn Bergsveinsson. Á BY R GÐA R M A Ð U R Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ. R I T N E F N D Gunnar Gunnarsson, formaður, Annas Jón Sigmundsson, Eiður Andri Guðlaugs- son, Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir, Sig- urður Óskar Jónsson og Soffía Meldal. P R E N T U N Prentmet Oddi. L J ÓS MY N D I R Ívar Sæland, Haraldur Jónasson, Gunnar Gunnarsson, Hafsteinn Snær Þorsteinsson, Jón Aðalsteinn Berg- sveinsson, Ólafur Þór Jónsson, Oscar Rybinski, Sabína Steinunn Halldórs- dóttir, Ágúst Atlason o.fl. UM BR OT O G H Ö N N U N Indígó. P R Ó FA R KA L E ST U R Helgi Magnússon. AU GLÝS I N GA R Styrktarsöfnun. FO R S Í Ð UMY N D Á forsíðu Skinfaxa má sjá tvo nemendur Snælandsskóla í Kópavogi í Ungmenna- búðum UMFÍ á Laugarvatni. ST J Ó R N UM F Í Haukur Valtýsson, formaður, Ragnheiður Högnadóttir, varaformaður, Sigurður Óskar Jónsson, ritari, Guðmundur Sigurbergsson, gjaldkeri, Gunnar Gunn- arsson, meðstjórnandi, Jóhann Steinar Ingimundarson, meðstjórnandi, og Gunnar Þór Gestsson, meðstjórnandi. VA R AST J Ó R N UM F Í Hallbera Eiríksdóttir, Lárus B. Lárusson, Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir og Gissur Jónsson. SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA Þjónustumiðstöð UMFÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík, sími: 568 2929. umfi@umfi.is www.umfi.is STA R FS FÓ L K UM F Í Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningarfulltrúi og ritstjóri Skinfaxa, Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og framkvæmdastjóri Landsmóta (með aðsetur á Sauðárkróki), Sabína Stein- unn Halldórsdóttir, landsfulltrúi og verk- efnastjóri, Ragnheiður Sigurðardóttir, landsfulltrúi og verkefnastjóri, og Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari. UM F Í Ungmennafélag Íslands er landssam- band ungmennafélaga á Íslandi. UMFÍ var stofnað á Þingvöllum 2. ágúst 1907. Sambandsaðilar UMFÍ eru 28 talsins sem skiptast í 18 héraðssambönd, 3 íþróttabandalög og 7 ungmennafélög með beina aðild. Alls eru um 460 félög innan UMFÍ með rúmlega 300 þúsund félagsmenn. „Ég er mjög þakklátur fyrir þennan mikla heiður sem er til marks um að maður sé að gera eitthvað rétt,” segir Algirdas Slapikas, formaður íþróttafélagsins Stál-úlfs. Félagið á aðild að Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK). Á síðasta ársþingi UMSK í vor var Algirdas sæmdur starfsmerki UMFÍ og varð hann einn fyrsti einstaklingurinn af erlendu bergi brotinn til að hljóta slíkt merki. Í þróttafélagið Stál-úlfur var stofnað í byrjun árs 2010 en að baki því er fólk frá Litháen með brennandi áhuga á íþróttum og æfir í Kópa- vogi. Algirdas segir forsöguna þá að fyrir stofnun Stál-úlfs hafi Félag Litháa á Íslandi staðið fyrir götuboltamóti. Í það skráðu sig 13 lið og því yfir 50 keppendur. „Þetta var ótrúlegur fjöldi. Við höfðum því samband við KKÍ og könn- uðum hvað við þyrftum að gera til að búa til lið sem gæti tekið þátt í keppni í 2. deild. Þar var tekið vel í pælingarnar og okkur sagt að við þyrftum að stofna félag. Það gerðum við árið 2010 og þá fór boltinn að rúlla,“ segir Algirdas og bætir við að um þetta leyti hafi kona hans, handboltakempan Jolanta Slapikiene, verið að hætta í atvinnumennsku í handbolta. Hún var einmitt ástæða þess að þau hjónin fluttu hingað árið 1998 en Jolanta var markvörður í meistaraflokki kvenna hjá bæði FH og Val um árabil. „Ég hef stundum grínast með það að þegar konan mín var að ljúka sínum ferli þá var minn að byrja,“ segir Algirdas. „En ég er mikill áhuga- maður um alls konar íþróttir, hef gaman af að spila með eldri flokki Stál-úlfs í fótbolta og þjálfa körfuboltaliðið okkar.“ Algirdas segir skrýtna tíma nú um stundir þegar samkomubann veld- ur því að íþróttastarf liggur niðri. En Stál-úlfur verður ekki fyrir miklu tapi þótt iðkendum finnist leiðinlegt að geta ekki mætt á æfingu. „Við erum öll sjálfboðaliðar í félaginu og með engan á launaskrá. Þetta er hrein áhugamennska fyrir fólk sem hefur gaman af hreyfingu og sækist eftir félagsskap,“ segir Algirdas Slapikas. Félag fyrir alla Stál-úlfi hefur frá upphafi verið ætlað að vera vettvangur fyrir fólk sem hefur áhuga á íþróttum, hvetja til heilbrigðra lífshátta og auðvelda fólki, sem flutt hefur hingað til lands, að aðlagast samfélaginu í gegnum íþróttir. Algirdas leggur áherslu á að félagið sé opið öllum sem vilja ganga í það. Körfubolti er afar vinsæl grein í Litháen og hafa margir brottfluttir Algirdas í Stál-úlfi sæmdur starfsmerki UMFÍ: Íþróttafélag fyrir fólk sem hefur gaman af því að hreyfa sig og hitta aðra Litháar stofnað körfuboltalið í löndum þar sem þeir búa svo að þau eru fjölmörg í Evrópu og víðar, meira að segja í Ástralíu. Liðin koma svo saman á fjögurra ára fresti í Litháen og keppa sín á milli. Næsta mót verður í Litháen á næsta ári og hafa Stál-úlfsliðar sett stefnuna þangað. „Við förum auðvitað út fyrir Íslands hönd,“ segir hann Einbeittir liðsmenn körfuboltaliðs Stál-úlfs. Algirdas er þjálfari liðsins og lengst til hægri á myndinni, sá eini í treyju án númers. Sterkasta félagið Nafnið Stál-úlfur byggir á sögu af járnúlfi sem Gediminas, stór- hertoga af Litháen, á að hafa dreymt. Sagan segir að Gediminas hafi verið á veiðum í dal á milli fljótanna Neris og Vilniu. Hann lagðist til svefns í helli og dreymdi þá risastóran úlf sem gólaði hátt. Gediminas réð af draumnum að þarna ætti hann að reisa kastala og byggja borg sem yrði ósigrandi eins og járnúlfur. Borgin fékk heitið Vilnius. „Stál er sterkara en járn og því ákváðum við að láta félagið verða sterkara,“ segir Algirdas.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.