Skinfaxi - 01.01.2020, Side 6
6 S K I N FA X I
Skinfaxi 1. tbl. 2020
Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags Íslands
(UMFÍ), hefur komið út samfleytt síðan
árið 1909. Tímaritið dregur nafn sitt af
hestinum fljúgandi sem dró vagn goð-
sagnaverunnar Dags er ók um himin-
hvolfið í norrænum sagnaheimi.
R I TST J Ó R I
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson.
Á BY R GÐA R M A Ð U R
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ.
R I T N E F N D
Gunnar Gunnarsson, formaður, Annas
Jón Sigmundsson, Eiður Andri Guðlaugs-
son, Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir, Sig-
urður Óskar Jónsson og Soffía Meldal.
P R E N T U N
Prentmet Oddi.
L J ÓS MY N D I R
Ívar Sæland, Haraldur Jónasson,
Gunnar Gunnarsson, Hafsteinn Snær
Þorsteinsson, Jón Aðalsteinn Berg-
sveinsson, Ólafur Þór Jónsson, Oscar
Rybinski, Sabína Steinunn Halldórs-
dóttir, Ágúst Atlason o.fl.
UM BR OT O G H Ö N N U N
Indígó.
P R Ó FA R KA L E ST U R
Helgi Magnússon.
AU GLÝS I N GA R
Styrktarsöfnun.
FO R S Í Ð UMY N D
Á forsíðu Skinfaxa má sjá tvo nemendur
Snælandsskóla í Kópavogi í Ungmenna-
búðum UMFÍ á Laugarvatni.
ST J Ó R N UM F Í
Haukur Valtýsson, formaður, Ragnheiður
Högnadóttir, varaformaður, Sigurður
Óskar Jónsson, ritari, Guðmundur
Sigurbergsson, gjaldkeri, Gunnar Gunn-
arsson, meðstjórnandi, Jóhann Steinar
Ingimundarson, meðstjórnandi, og
Gunnar Þór Gestsson, meðstjórnandi.
VA R AST J Ó R N UM F Í
Hallbera Eiríksdóttir, Lárus B. Lárusson,
Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir og Gissur
Jónsson.
SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík,
sími: 568 2929.
umfi@umfi.is
www.umfi.is
STA R FS FÓ L K UM F Í
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson,
kynningarfulltrúi og ritstjóri Skinfaxa,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og
framkvæmdastjóri Landsmóta (með
aðsetur á Sauðárkróki), Sabína Stein-
unn Halldórsdóttir, landsfulltrúi og verk-
efnastjóri, Ragnheiður Sigurðardóttir,
landsfulltrúi og verkefnastjóri, og
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
UM F Í
Ungmennafélag Íslands er landssam-
band ungmennafélaga á Íslandi. UMFÍ
var stofnað á Þingvöllum 2. ágúst 1907.
Sambandsaðilar UMFÍ eru 28 talsins
sem skiptast í 18 héraðssambönd, 3
íþróttabandalög og 7 ungmennafélög
með beina aðild. Alls eru um 460 félög
innan UMFÍ með rúmlega 300 þúsund
félagsmenn.
„Ég er mjög þakklátur fyrir þennan mikla heiður sem er til marks um
að maður sé að gera eitthvað rétt,” segir Algirdas Slapikas, formaður
íþróttafélagsins Stál-úlfs.
Félagið á aðild að Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK). Á
síðasta ársþingi UMSK í vor var Algirdas sæmdur starfsmerki UMFÍ og
varð hann einn fyrsti einstaklingurinn af erlendu bergi brotinn til að
hljóta slíkt merki.
Í þróttafélagið Stál-úlfur var stofnað í byrjun árs 2010 en að baki því
er fólk frá Litháen með brennandi áhuga á íþróttum og æfir í Kópa-
vogi. Algirdas segir forsöguna þá að fyrir stofnun Stál-úlfs hafi
Félag Litháa á Íslandi staðið fyrir götuboltamóti. Í það skráðu sig 13 lið
og því yfir 50 keppendur.
„Þetta var ótrúlegur fjöldi. Við höfðum því samband við KKÍ og könn-
uðum hvað við þyrftum að gera til að búa til lið sem gæti tekið þátt í
keppni í 2. deild. Þar var tekið vel í pælingarnar og okkur sagt að við
þyrftum að stofna félag. Það gerðum við árið 2010 og þá fór boltinn
að rúlla,“ segir Algirdas og bætir við að um þetta leyti hafi kona hans,
handboltakempan Jolanta Slapikiene, verið að hætta í atvinnumennsku
í handbolta. Hún var einmitt ástæða þess að þau hjónin fluttu hingað
árið 1998 en Jolanta var markvörður í meistaraflokki kvenna hjá bæði
FH og Val um árabil.
„Ég hef stundum grínast með það að þegar konan mín var að ljúka
sínum ferli þá var minn að byrja,“ segir Algirdas. „En ég er mikill áhuga-
maður um alls konar íþróttir, hef gaman af að spila með eldri flokki
Stál-úlfs í fótbolta og þjálfa körfuboltaliðið okkar.“
Algirdas segir skrýtna tíma nú um stundir þegar samkomubann veld-
ur því að íþróttastarf liggur niðri. En Stál-úlfur verður ekki fyrir miklu
tapi þótt iðkendum finnist leiðinlegt að geta ekki mætt á æfingu. „Við
erum öll sjálfboðaliðar í félaginu og með engan á launaskrá. Þetta er
hrein áhugamennska fyrir fólk sem hefur gaman af hreyfingu og sækist
eftir félagsskap,“ segir Algirdas Slapikas.
Félag fyrir alla
Stál-úlfi hefur frá upphafi verið ætlað að vera vettvangur fyrir fólk sem
hefur áhuga á íþróttum, hvetja til heilbrigðra lífshátta og auðvelda fólki,
sem flutt hefur hingað til lands, að aðlagast samfélaginu í gegnum
íþróttir. Algirdas leggur áherslu á að félagið sé opið öllum sem vilja
ganga í það.
Körfubolti er afar vinsæl grein í Litháen og hafa margir brottfluttir
Algirdas í Stál-úlfi sæmdur starfsmerki UMFÍ:
Íþróttafélag fyrir fólk sem hefur gaman
af því að hreyfa sig og hitta aðra
Litháar stofnað körfuboltalið í löndum þar sem þeir búa svo að þau
eru fjölmörg í Evrópu og víðar, meira að segja í Ástralíu. Liðin koma
svo saman á fjögurra ára fresti í Litháen og keppa sín á milli. Næsta
mót verður í Litháen á næsta ári og hafa Stál-úlfsliðar sett stefnuna
þangað. „Við förum auðvitað út fyrir Íslands hönd,“ segir hann
Einbeittir liðsmenn körfuboltaliðs Stál-úlfs. Algirdas er þjálfari liðsins og
lengst til hægri á myndinni, sá eini í treyju án númers.
Sterkasta félagið
Nafnið Stál-úlfur byggir á sögu
af járnúlfi sem Gediminas, stór-
hertoga af Litháen, á að hafa
dreymt. Sagan segir að
Gediminas hafi verið á veiðum
í dal á milli fljótanna Neris og
Vilniu. Hann lagðist til svefns í
helli og dreymdi þá risastóran
úlf sem gólaði hátt. Gediminas
réð af draumnum að þarna ætti
hann að reisa kastala og byggja borg sem yrði ósigrandi eins og
járnúlfur. Borgin fékk heitið Vilnius. „Stál er sterkara en járn og
því ákváðum við að láta félagið verða sterkara,“ segir Algirdas.