Skinfaxi - 01.01.2020, Blaðsíða 35
S K I N FA X I 35
Fólk nýtir sér
netnámskeiðið
„Það er gleðilegt að æ fleiri kannast nú við Æskulýðsvettvang-
inn og þau verkfæri sem við höfum upp á að bjóða. Það er mjög
jákvætt enda skilar það sér beint til aðildarfélaganna, út í æsku-
lýðsstarfið, í aukinni þekkingu starfsmanna og sjálfboðaliða og
allra annarra,“ segir Sema Erla Serdar, framkvæmdastýra Æsku-
lýðsvettvangsins. Hún fór í byrjun árs ásamt Auði Ingu Þorsteins-
dóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ, í stutta ferð um Austurland til
að kynna Æskulýðsvettvanginn og hvaða úrræði séu í boði fyrir
þau félagasamtök sem mynda vettvanginn og aðildarfélög þeirra.
Á Austurlandi voru haldnir fjórir kynningarfundir, á Djúpavogi,
Egilsstöðum, Vopnafirði og Reyðarfirði. Áður hefur Sema kynnt
netnámskeiðið og verkfæri Æskulýðsvettvangsins á höfuðborgar-
svæðinu.
Sema segir þær Auði hafa hitt fjölmennan hóp. „Það var góður
og fjölbreyttur hópur á hverjum fundi. Þarna voru þeir sem við
vildum hitta; fólk frá íþróttafélögunum, skólum og sveitarfélög-
um, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, kirkjunum, foreldrar og
iðkendur,“ segir Sema og bendir á að fólk hafi spurt margs um
Æskulýðsvettvanginn og út í þau úrræði sem í boði eru fyrir
starfsfólk .
Í ferð sinni austur kynntu þær Sema og Auður Inga netnám-
skeið Æskulýðsvettvangsins. Sema segir notendum þess hafa
fjölgað eftir ferðina.
„Ég sé að fjöldi fólks hefur tekið námskeiðið eftir að við kom -
um af kynningarfundinum. Ég upplifi líka að fólk hefur verið að
kynna sér verkfærin okkar, viðbragðsáætlanir og ráðgjöf varð-
andi sín mál,“ segir Sema.
Námskeiðið er opið
öllum áhugasömum
og er notendum að
kostnaðarlausu.
Hægt er að nálgast
frekari upplýsingar og
námskeiðið sjálft á:
namskeid.aev.is/
courses/barnavernd
Netnámskeið sem eykur
öryggi iðkenda
Netnámskeiðið Barnavernd fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða í
íþrótta- og æskulýðsstarfi er nýjung í fræðslu og forvörnum
á Íslandi. Þar er fólki kennt að þekkja mismunandi birtingar-
myndir ofbeldis, eineltis og annars áreitis sem börn og ung-
menni geta orðið fyrir og læra hvernig á að bregðast við
þegar slík atvik koma upp.
Mikilvægt er að allir sem starfa með börnum og ungmenn-
um séu meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð. Um leið og
ein félagasamtök leggja mikla áherslu á þekkingu starfsfólks
og sjálfboðaliða leggja önnur enga áherslu á hana. Með því
að bjóða upp á netnámskeið vill Æskulýðsvettvangurinn auð-
velda félagasamtökum, starfsfólki þeirra og sjálfboðaliðum
að sækja sér slíka þekkingu.
Æskulýðsvettvangurinn er sam-
starfsvettvangur Bandalags
íslenskra skáta, KFUM og KFUK
á Íslandi, Slysavarnafélagsins
Landsbjargar og UMFÍ. Netnám-
skeiðið og þróun þess var styrkt af
félagsmálaráðuneytinu, Æskulýðs-
sjóði og Lýðheilsusjóði.