Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.2022, Qupperneq 7

Skinfaxi - 01.02.2022, Qupperneq 7
 S K I N FA X I 7 „Flutningurinn er jákvæður, samskipti og samgangur íþróttahreyfing- arinnar verður mun meiri en nokkru sinni. Við verðum miklu sterkari saman en í sundur,“ sagði Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, í ávarpi við setningu 44. sambandsráðsfundar UMFÍ á Höfn í Hornafirði. Þar var honum tíðrætt um neikvæð áhrif COVID-faraldurs- ins á lýðheilsu fólks og mikilvægi þess að bæta hana. Þótt faraldrinum væri að mestu lokið glímdi fólk enn við afleiðingarnar. Mataræði margra hefði versnað, fólk hreyfði sig minna saman og fari ekki á fjölmenna við- burði, sem hefði í för með sér meiri einsemd. Þessi staða setti þrýsting á heilbrigðiskerfið og yrði íþrótta- og ungmennafélagshreyfingin að hjálpa til við að bæta hana. Það væri í anda UMFÍ, enda samfélaginu til góða. Ný skref íþróttahreyfingarinnar Jóhann var sannfærður um að flutningur þjónustumiðstöðvar UMFÍ í Íþróttamiðstöðina við Laugardal myndi styrkja íþróttahreyfinguna til framtíðar. Þar fyrir eru skrifstofur tveggja stærstu sambandsaðila UMFÍ, ÍBR og UMSK, skrifstofa ÍSÍ og sérsambanda. Mikilvægt að þora að grípa tækifærin Formaður UMFÍ segir íþrótta- og ungmennafélags- hreyfinguna í lykilstöðu til að bæta lýðheilsu fólks eftir faraldurinn. Sambandsráðsfundur UMFÍ var haldinn á Höfn í Hornafirði 14. og 15. október. Hvatningarverðlaun UMFÍ Þrír sambandsaðilar hlutu Hvatningarverðlaun UMFÍ á sambandsráðs- fundinum. Það eru Þróttur Vogum fyrir Ástarverkefni, Ungmennasam- band Kjalarnesþings (UMSK) fyrir verkefnið Virkni og vellíðan í Kópa- vogi og Ungmennasamband Austur-Húnvetninga (USAH) fyrir sam- starf aðildarfélaganna Fram og Hvatar. Samstaða innan hreyfingarinnar Eftirtektarvert var hversu stemningin var góð á sambandsráðsfundin- um UMFÍ á Höfn. Auk hefðbundinnar dagskrá kynntu þrjár nefndir störf sín og tillögur. Það voru vinnuhópur um íþróttahéruð og lottó- reglur, móta- og viðburðanefnd og útgáfu- og kynningarnefnd. Miklar umræður sköpuðust um tillögur nefndanna, sem miða m.a. að því að styrkja íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna og hafa jákvæð áhrif á lýðheilsu. Fundurinn er haldinn á tveggja ára fresti og er hann æðsta vald í málefnum ungmennafélagshreyfingarinnar á milli sambandsþinga. Fundurinn markaði talsverð tímamót, því hvorki sambandsráðsfundur né þing UMFÍ hafa verið haldin á Höfn síðan árið 1990, eða í 32 ár. Heimafólk var við stjórnvölinn á fundinum. Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður Ungmennasambandsins Úlfljóts (USÚ), var fundarstjóri og Sigurður Óskar Jónasson, gjaldkeri USÚ, var ritari fundarins. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ. Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður USÚ, var fundarstjóri. Frá afhendingu hvatningarverðlauna UMFÍ. F.v.: Jóhann Steinar Ingimundarson formaður UMFÍ, Gunnar Helgason Þrótti Vogum, Snjólaug Jónsdóttir USAH og Guðmundur G. Sigurbergsson UMSK. Fulltrúar sambandsaðila á 44. sambandsráðsfundi UMFÍ sem haldinn var á Höfn í Hornafirði 14. og 15. október. Eitt mikilvægasta málefnið fram undan er að mati Jóhanns neikvæð- ar afleiðingar faraldursins og sagði hann að íþróttahreyfingin væri best til þess fallin að koma fólki á hreyfingu. „Vandinn er samfélagslegur. Við sláum ekki af, heldur bítum í skjald- arrendur. Við þurfum að hafa kjark til að takast á við breytta tíma. Við höfum þurft að endurhugsa sviðsmyndir sem hafa margar reynst já- kvæð skref. Við höfum tekið upp ný vinnubrögð og eigum að vera óhrædd við að hugsa hlutina upp á nýtt,“ sagði hann og lagði áherslu á að nýjar aðstæður kölluðu á að nýta þau tækifæri sem kæmu upp.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.