Skinfaxi - 01.02.2022, Page 10
10 S K I N FA X I
Skólabúðir eru í sífelldri þróun
UMFÍ tók við rekstri Skólabúðanna á Reykjum í Hrútafirði með stuttum fyrirvara í haust. Bretta þurfti
því upp ermar til að ráðast í umfangsmiklar endurbætur á húsnæði Skólabúðanna. Mikil aðsókn er
bæði í Skólabúðirnar á Reykjum og Ungmennabúðir UMFÍ á Laugarvatni. Færri komast að en vilja.
„Lífið er í fullum gangi bæði fyrir norðan og sunnan. Þrátt fyrir að við
hefðum frekar stuttan fyrirvara til að undirbúa skólaárið á Reykjum lögð-
ust allir á eitt um að láta þetta ganga upp. Það tókst og allt hefur gengið
vel í Skólabúðunum,“ segir Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður
Ungmennabúða UMFÍ á Laugarvatni og Skólabúðanna á Reykjum í
Hrútafirði.
Skólabúðir höfðu verið starfræktar á Reykjum um árabil en sveitar-
stjórn Húnaþings vestra auglýsti í mars á þessu ári eftir nýjum samstarfs-
aðila um rekstur þeirra. UMFÍ svaraði kallinu og skrifuðu þær Auður
Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, og Ragnheiður Jóna
Ingimarsdóttir, þá sveitarstjóri, undir rekstrarsamning í ágúst. Í samn-
ingnum kemur meðal annars fram að í búðunum verði unnið eftir Heims-
markmiðum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og aðalnámskrá
grunnskóla. Þá verða saga og atvinnuhættir á landsbyggðinni kynnt
fyrir nemendum með skipulagðri safnakennslu í samstarfi við Byggða-
safn Húnvetninga og Strandamanna.
Stefnan var strax sett á að UMFÍ tæki við rekstri Skólabúðanna á
Reykjum um haustið. Allt var sett á fullt, enda ljóst að gera þyrfti gríðar-