Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 14
14 S K I N FA X I
K
ristján er fæddur á Akranesi 1947 og bjó þar til fimm ára
aldurs en þá fluttu foreldrar hans norður í Mývatnssveit,
þaðan sem faðir hans er fæddur og uppalinn. Kristján
ólst upp á Skútustöðum og gekk í skóla í þar. Þegar hann
var 17 ára lá leiðin aftur til Akraness. Þar bjó hann í fimm
ár hjá afa sínum og ömmu og stundaði iðnnám. Að því loknu árið 1969
fór hann aftur norður, stofnaði fljótlega byggingafyrirtækið Sniðil og
starfaði við það sem framkvæmdastjóri í 30 ár. Hann flutti um 2000
í Kópavog og vann sem verkefnastjóri hjá stóru byggingafélagi. Frá
2009 hefur hann unnið hjá ýmsum byggingaraðilum. Hann var kosinn
í sveitarstjórn Skútustaðahrepps árið 1980 og sat eitt kjörtímabil.
Sambýliskona Kristjáns er Guðrún Eggertsdóttir. Kristján á þau þrjú
börn með Sigrúnu Jóhannsdóttur: Yngva Ragnar, sem rekur Sel Hótel
á Skútustöðum, Jóhönnu Sigríði, hjúkrunarfræðing á Húsavík, og Ólaf
Helga, sem rekur eigin veitingastað, Brasserie Kársnes. Barnabörnin
eru átta talsins.
Kristján Elvar Yngvason var kjörinn heiðursfélagi UMFÍ á sambandsþingi á Húsavík 2021.
Kristján á langan feril að baki í félagsstörfum innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Hann var í
stjórn Ungmennafélagsins Mývetnings í 15 ár, þar af formaður í sex ár, þar til hann varð formað-
ur Héraðssambands Suður-Þingeyinga árið 1985. Hann var kosinn í stjórn UMFÍ árið 1987 og
átti þar sæti í 14 ár. Hann var gjaldkeri UMFÍ í tíu ár, frá 1991 til 2001. Kristján var mikill íþrótta-
maður, lék um tíma knattspyrnu á Akranesi og keppti m.a. í glímu á öllum landsmótum UMFÍ
frá 1971 til 2013 fyrir hönd HSÞ. Þá var hann formaður Glímusambands Íslands 2001 til 2005.
LANDSMÓTIÐ
Á HÚSAVÍK
VAR GRÍÐAR-
LEGA MIKIÐ
VERKEFNI OG
TÓKST VEL
– Við vorum með samheldið lið
Þingeyinga sem vann að mótinu
og fengum þvílíkt gott veður
sem gerði þetta enn betra