Skinfaxi - 01.02.2022, Side 19
S K I N FA X I 19
Hvað tókuð þið heim?
Hvernig fannst íslensku gestunum, hver er
lærdómurinn og hvað má hafa í huga hér á landi?
Auður Inga: Fimleikahópar hafa verið mjög sýnilegir á landsmótum
DGI í gegnum tíðina og hátíðin verið nánast tileinkuð þeim. En aðrar
greinar voru líka sýnilegri en áður. Þátttakendur voru vissulega að
keppa sín á milli en aðaláherslan var samt á þátttöku. Það sem stendur
upp úr er hversu mikil áherslan er á þátttöku og fjölbreytileika, en það
einkenndist m.a. í atriðum á setningarhátíð þar sem „venjulegt fólk“
bar hitann og þungann af atriðunum. Þá var gleði allsráðandi, hvort
sem var um að ræða þátttakendur, skipuleggjendur eða sjálfboðaliða.
Það má yfirfæra þessar hugmyndir um þátttökuna og skipulag
mótsins til Íslands. Á sama tíma þarf að velta fyrirkomulaginu fyrir sér,
þar sem íþróttahéruðin eru ekki öll með starfsfólk.
Upplifun mín er sú að mikil samstaða og samvinna hafi verið milli
sveitarfélagsins og DGI. Margar verslanir á svæðinu voru með tilboð
og merkingar tengd mótinu og augljóst að sveitarfélaginu fannst
mikill heiður að hýsa landsmótið.
Jóhann Steinar: Það sem mest kom á óvart var hversu margir á mið-
jum aldri í mismunandi formi tóku þátt í sýningum. Mín upplifun er sú
að þetta er miklu meiri menningarhátíð en íþróttahátíð og skýrist það
sennilega af því að upplifun á keppni er ekki til staðar. Eftirtektarvert
var hversu mikil gleði skein úr andlitum þátttakenda.
Ómar Bragi: Það er alltaf hvetjandi og gaman að fara á svona
viðburði, sjá nýjungar og upplifa stemninguna. Það er athyglisvert
hvað sveitarfélagið og samfélagið allt tekur mikinn þátt í þessu öllu og
leggur metnað sinn í að gera viðburðinn enn stórkostlegri.
Ragnheiður: Við vorum svo heppin að rekast á íslenskar stúlkur
sem voru þátttakendur í mótinu með lýðháskólum sínum. Þær
lýstu fyrirkomulaginu vel fyrir okkur. Skólarnir senda lið á mótið en
þátttakendur greiða þátttökugjaldið sjálfir. Athyglisvert er að fjöldi
þátttakenda jafngildir 0,4% af dönsku þjóðinni. Ef við heimfærum
þetta yfir á Unglingalandsmótið eða aðra viðburði jafngildir það um
1.500 manns hjá okkur.
Velkomin í Árborg
Lifandi samfélag í alfaraleið!
Við tökum vel á móti þér.
Viltu fræðast um Landsmót DGI í gegnum tíðina?
Þú finnur upplýsingarnar hér: https://www.dgi.dk/
landsstaevner/landsstaevner-gennem-tiden
DGI heita fullu nafni Danske Gymnastik- og Idrætsforeninger
og eru samtökin systursamtök UMFÍ í Danmörku. Góð sam-
vinna og vinskapur hefur um árabil verið á milli samtakanna
og koma margar hugmyndir að verkefnum UMFÍ frá DGI.
Frá vinstri: Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, Ómar
Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ, Jóhann Steinar Ingi-
mundarson, formaður UMFÍ og Ragnheiður Högnadóttir, formaður
framkvæmdastjórnar UMFÍ.