Skinfaxi - 01.02.2022, Síða 23
S K I N FA X I 23
Tvö aðildarfélög HSK starfa sérstaklega með fötluðu íþróttafólki:
Íþróttafélagið Suðri á Selfossi og Íþróttafélagið Gnýr í Sólheimum
í Grímsnesi. Stuðningur og samstarf HSK við íþróttastarf fatlaðra í
héraði er einkum í gegnum íþróttanefnd fatlaðra hjá HSK. Í sam-
starfi við nefndina og félögin hefur HSK um langt árabil haldið
héraðsmót í frjálsíþróttum fatlaðra og hin seinni ár hafa mót í fleiri
greinum bæst við, eins og í boccia, golfi og lyftingum.
Í skýrslu íþróttanefndar HSK, sem birtist í ársskýrslu 2018 segir
m.a.: „Íþróttanefnd fatlaðra hjá HSK vinnur að íþróttamálum fyrir
fólk með fötlun sem æfir íþróttir í Árnes- og Rangárvallasýslu. Áhugi
er hjá nefndarfólki að ná til allra fatlaðra barna og unglinga sem hafa
áhuga á að æfa íþróttir. Mjög margir möguleikar eru til æfinga og
keppni og samkvæmt rannsóknum á þátttöku fatlaðs fólks í íþróttum
efla þær mjög líkamlega getu, félagslega stöðu og sjálfstraust. Við
erum tilbúin til að veita nánari upplýsingar um þessi mál.“
Þetta á enn við og áhugasamir geta haft samband við HSK eða
íþróttanefnd fatlaðra.
Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK
Stuðningur HSK við íþróttastarf fatlaðra
Hjá Grímsnes- og Grafningshreppi er helsti stuðningur við ein-
staklinga með fötlun í íþrótta- og tómstundastarfi í gegnum
liðveislu og akstur á viðburði tengda íþróttum og tómstundum.
Flestir fatlaðir einstaklingar í sveitarfélaginu búa á Sólheimum
og samskipti varðandi þessi mál fara í gegnum starfsmenn hjá
þeim sem halda utan um starfið og þann stuðning sem þau þurfa.
Á Sólheimum eru íþróttafélag, skátafélag og leikfélag, þar sem
einstaklingar með fötlun eru meirihluti þátttakenda. Endurskoðun
á samningum við þessi félög er núna í gangi, en leikfélagið hef-
ur t.d. fengið styrk undanfarin ár og er vilji til að festa það í
samstarfssamning.
Guðrún Ása Kristleifsdóttir, heilsu- og tómstundafulltrúi
Grímsnes- og Grafningshrepps
Stuðningur Grímsnes- og Grafnings-
hrepps við íþróttastarf fatlaðra
Sveitarfélagið Árborg rekur öflugt frístundastarf fyrir einstakl-
inga með fötlun. Er það bæði almennt í frístundaheimilum fyrir
1.– 4. bekk grunnskóla og svo í frístundaklúbbunum Kotinu og
Klettinum sem eru fyrir 5.–10. bekk. Fyrir 16 ára og eldri er t.d.
í boði frístundastarf í gegnum klúbbinn „Selinn“, en þar hittast
félagar að jafnaði tvisvar sinnum í viku.
Íþróttafélagið Suðri er með samning við Sveitarfélagið Árborg
og sjá þeir um fjölbreytt íþróttastarf fyrir einstaklinga með fötlun.
Félagið fær einnig aðstöðu í íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins.
Suðri er einnig í samstarfi við önnur íþróttafélög í sveitarfélaginu
um æfingar og fleira.
Bragi Bjarnason, formaður bæjarráðs Árborgar
Stuðningur Sveitarfélagsins Árborgar
við íþróttastarf fatlaðra
Þátttakendur og þjálfarar á bocciamóti HSK.