Skinfaxi - 01.02.2022, Blaðsíða 34
34 S K I N FA X I
Íþróttaveisla UMFÍ og UMSK fór fram á sambandssvæði Ungmennasambands Kjalarnesþings síðla sumars.
Veislan var haldin í tilefni af 100 ára afmæli UMSK á árinu. Sambandssvæðið er „Kraginn“ svokallaði, en hann
markast af Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi, Kópavogi og Garðabæ ásamt Álftanesi. Upphaflega stóð reyndar
til að halda fjóra viðburði, einn í hverju sveitarfélagi, en einn var felldur niður.
„Það voru allir rosalega ánægðir,
bæði sjálfboðaliðarnir í brautinni
og fjölskyldurnar sem tóku þátt í
Drulluhlaupinu. Við vorum auð-
vitað fáránlega heppin með veð-
ur en það var líka svo mikil gleði á
staðnum,“ segir Hanna Björk Hall-
dórsdóttir, íþróttafulltrúi Ung-
mennafélagsins Aftureldingar.
Íþróttaveisla UMFÍ og UMSK
hófst með Drulluhlaupi Krónunnar
13. ágúst í nágrenni íþróttamið-
stöðvarinnar við Varmá. Hlaupa-
leiðin var 3,5 kílómetrar með 21
hindrun á leiðinni, klifurnetum,
rörum til að renna sér í gegnum,
drullupyttum og klifurvegg, auk
langrar og hundblautrar rennibrautar sem búin var til úr dúknum sem
fauk ofan af íþróttahúsi Hamars í Hveragerði í ofsaveðri í vor.
ÍÞRÓTTAVEISLA UMFÍ
Allir ánægðir í Drulluhlaupi Krónunnar
Íþróttaveisla UMFÍ hófst með Drulluhlaupi Krónunnar í Mosfellsbæ í ágúst. Mikil
ánægja var með hlaupið og bíða sjálfboðaliðarnir eftir því að það verði aftur að ári.
Sjálfboðaliðar úr frjálsíþróttadeild Aftureldingar unnu með starfs-
mönnum UMSK við að setja brautina upp en meistaraflokkur kvenna í
knattspyrnu hjá Aftureldingu stóð vaktina á brautinni meðan 400 þátt-
takendur þreyttu hlaupið, fólk á öllum aldri frá átta ára og upp úr. Stuð-
boltarnir Eva Ruza og útvarpsmaðurinn og plötusnúðurinn Siggi
Gunnars héldu stuðinu uppi við ráslínu, sem sömuleiðis var endamark
hlaupsins. Markið var sett við 400 þátttakendur, enda verið að halda
hlaupið í fyrsta sinn og óvíst hvernig til myndi takast. Niðurstaðan var
langt umfram væntingar.
Hanna Björk var á staðnum að fylgjast með og hjólaði alla brautina.
„Stelpurnar sem settu brautina upp skemmtu sér mjög vel og stelp-
urnar í fótboltanum skemmtu sér konunglega. Það var allt eitthvað svo
skemmtilegt við Drulluhlaupið. Á svona leiðum má oft sjá buguð börn
og einhverja sem treysta sér ekki í eitthvað. En ekki í Drulluhlaupinu,
þar voru allir glaðir,“ segir Hanna Björk og rifjar upp að við frágang
eftir hlaupið hafi fólk sagst vona að þetta yrði að árlegum viðburði.
„Við erum öll spennt fyrir því að halda Drulluhlaupið aftur á næsta
ári, enda munu þá fleiri taka þátt,“ segir hún.
Hanna Björk Halldórsdóttir,
íþróttafulltrúi Aftureldingar.