Gátt - 2016, Side 11
Aldrei of seint að byrja. Réttindi styrkja
Raunfærnimatið er alger snilld og það ættu
Námskeiðið var frábær upplifun og
Samtal við námsráðgjafa breytti
góð leið til að komast út og hitta fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar sem það er statt og mæta þeim sem eru les-, eða talnablindir og eiga
Námskeiðið hefur styrkt mig persónulega í
vondar minningar úr skóla.
leik og starfi. Námskeiðið gjörbreytti mér og mínu lífi, það gaf mér mikið
sjálfsöryggi. Sjálfsstyrking og samskipti er stór þáttur í náminu og mjög
mikilvægur.
11
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
lega sýn á hæfniþarfir í atvinnulífi á Norðurlöndum og eflingu
starfsnáms. Gerð er grein fyrir verkefninu í áðurnefndri skýrslu,
í kafla um norrænt samstarf. Verkefnið ber heitið Færniþróun í
atvinnulífinu, sem er nýtt tengslanet á vegum NVL.
FA tekur þátt í innlendu og erlendu samstarfi við aðila
atvinnulífsins að eflingu framhaldsfræðslunnar og öflun upp-
lýsinga um markhópinn og menntunarþarfir hans með því að
vinna með og túlka gögn frá innlendum og erlendum aðilum.
N Á M S K R Á R , N Á M S LÝ S I N G A R O G
H Æ F N I R A M M I N N
Fræðsluhönnunarferli FA hefur verið í þróun á árinu. Hug-
myndir um að námskrá, námslýsing og námsþættir byggi
á hæfniþáttum úr starfaprófíl (hæfnigrunni FA) hafa verið í
vinnslu með Menntamálastofnun (MMS) sem sér um vottun
námskráa. Á árinu hefur verið lögð áhersla á að skilgreina
enn betur hlutverk aðila í fræðsluferlinu sem og að vinna
áfram að þróun námskráa og endurskoðun þeirra, en þar
er mikið verk fyrir höndum á næstu árum. Jafnframt hefur
verið lögð áhersla á vinnu við hæfniramma fyrir framhalds-
fræðsluna og við að aðstoða samstarfsaðila við gerð nám-
skráa og námslýsinga eins og kostur er. Áfram verður unnið
að þróun og nánari útfærslu fræðsluferils í samræmi við til-
lögur um nýskipan náms í framhaldsfræðslu, í samstarfi við
MMS og fræðsluaðila.
Þau ánægjulegu tíðindi urðu haustið 2016 að aðilar
vinnumarkaðarins, mennta- og menningarmálaráðuneytið og
fleiri samtök (þar á meðal Kvasir) undirrituðu yfirlýsingu um
sameiginlegan skilning á hæfniramma um íslenska menntun.
Rammanum er ætlað að endurspegla stigvaxandi hæfni-
kröfur í formlegu og óformlegu námi. Jafnframt lýstu aðilar
yfir vilja sínum til að vinna saman að innleiðingu rammans
þannig að hann geri menntun gegnsærri, óformlega menntun
sýnilegri og sé hvati fyrir einstaklinga til að auka hæfni sína,
eins og segir í yfirlýsingunni. Hugmyndin um hæfniramma
hefur reynst Fræðslumiðstöðinni afar vel í þróun námsúrræða
og greiningarvinnu þar sem áherslan er á þekkingu, leikni
og hæfni, óháð því hvernig hennar er aflað. Að mati ráðu-
neytis menntamála markar undirritunin tímamót hvað varðar
áherslu á sýnileika ævilangrar menntunar sem fer fram bæði
við nám og störf, eins og segir á vefsíðu ráðuneytisins.
Það sem af er árinu hafa sex námskrár verið vottaðar
í gegnum námskrárgrunn mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins.
F-einingar eru nú reiknaðar á sama hátt í framhalds-
fræðslunni og í framhaldskólum. Reynsla þeirra fullorðnu
námsmanna sem stunda nám í framhaldsfræðslunni er
þannig ekki metin til fulls. Unnið hefur verið að því að finna
leiðir til að meta reynslu námsmanna, til dæmis með sér-
stökum námsþætti sem námsmenn geta fengið metinn
á móti eigin reynslu eða með námi án leiðbeinanda sem
reynslumeiri námsmenn eru fljótari að inna af hendi.
Unnið hefur verið eftir föngum að því að endurskoða
eldri námskrár og setja þær inn í námskrárgrunn fyrir fram-
haldsfræðslu. Samstarfsaðilum er veitt ráðgjöf og aðstoð við
gerð námskráa og námslýsinga eins og kostur er.
Möguleikar á framsetningu náms í almennri starfshæfni
eru í skoðun.
Í því skyni að afla þekkingar á hönnun og þróun fræðslu-
ferla og útfærslu þeirra var fræðilegt efni skoðað og nýtt
við endurskoðun á fræðsluhönnunarferlinu. Kennslumiðstöð
Háskóla Íslands (HÍ) var heimsótt. Fyrirhugað er áframhald-
andi samtal milli FA og kennslumiðstöðvarinnar.
Þ R Ó U N A Ð F E R Ð A Í F R A M H A L D S -
F R Æ Ð S L U
Starfið hefur frá upphafi falist í því að þróa kennslufræði-
námskeið og halda þau en einnig í því að halda fræðslufundi
og sinna ráðgjöf. Frá árinu 2003 hefur FA byggt upp og þróað
áfram 20 ólík námskeið fyrir fræðslustarfsmenn, kennara og
leiðbeinendur á sviði fullorðinsfræðslu sem nefnast Stiklur.
Námskeiðin eru á margvíslegum sviðum, með þarfir mark-
hóps FA að leiðarljósi og í samræmi við óskir og ábendingar
samstarfsaðilanna. Einnig hefur verið byggt upp gagnasafn
um framhaldsfræðslu, með um það bil 700 bókum og öðrum
gögnum, og hafa ýmsar aðferðir og mælistikur verið mótaðar
fyrir kennsluskipulag og námsefnisgerð. Frá árinu 2004 hafa
alls verið haldin um 85 kennslufræðinámskeið og fræðslu-
fundir fyrir fræðslustarfsmenn og leiðbeinendur. Námskeiðin
námu samtals rúmlega 14.200 nemendastundum og þau
sóttu 1.404 nemendur.
Það sem af er árinu 2016 hefur verið haldið námskeið um
notkun rafrænna miðla í námi fyrir Mími-símenntun.
Ráðgjöf í kennslufræði hefur farið fram með óformlegum
samtölum við verkefnastjóra hjá fræðsluaðilum. Haldnir
hafa verið þrír fundir með verkefnastjórum þar sem rætt
hefur verið um kennslufræði í framhaldsfræðslu, svo og einn
fundur í starfsmannahópi FA.