Gátt - 2016, Page 56
stöðu manns á vinnumarkaði.
allir a
ð fara í það sem
hafa kost á því.
góð leið til
að komast ú
t og hitta
fólk.
Kennsluaðferðirnar eru „alveg frábærar“ með að mæta fólki
þar se
m það er sta
tt o
g mæta þeim sem eru les-, e
ða talnablindir o
g eiga
Námskeiðið hefur sty
rkt mig persónulega í
Námskeiðið gjörbreytti m
ér og mínu lífi
, það gaf m
ér m
ikið
Sjálfssty
rking og samskipti er
stór þáttur í náminu og mjög
Gott a
ð hafa stu
ðning vinnustaðarins til
að sækja námskeiðið.
Námskeiðið var fjölbreytt og skemmtilegt og það hefur veitt m
ér in
nsýn
í hvar mínir sty
rkleikar lig
gja og hvað ég þarf að gera til a
ð komast í
56
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 6
ARNHEIÐUR GÍGJA GUÐMUNDSDÓTTIR OG FJÓLA MARÍA LÁRUSDÓTTIR
R Á Ð G J Ö F Í AT V I N N U L Í F I N U –
W O R K L I F E G U I D A N C E
Fjóla María Lárusdóttir Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) hefur undanfarin tvö ár
stýrt verkefninu Ráðgjöf í atvinnulífinu (Worklife guidance)
en það er styrkt af Erasmus+ KA2 áætlun Evrópusambands-
ins. Verkefnið var unnið í samstarfi fimm landa, Austurríkis,
Finnlands, Hollands, Svíþjóðar og Íslands. Verkefnið hófst 1.
september 2014 og lauk 31. ágúst síðastliðinn.
T I L G A N G U R O G M A R K M I Ð V E R K -
E F N I S I N S
Verkefnið Ráðgjöf í atvinnulífinu (Worklife Guidance) bygg-
ist á þeirri sýn að símenntun og færniþróun fari að miklu
leyti fram á vinnustöðum. Samkvæmt Jens Fischer Kotten-
stede fer mikil ef ekki mest símenntun fram á vinnustað ein-
faldlega með því að þjálfa og bæta færni í daglegu starfi
(European Lifelong Learning Magazine, 2014). Þetta styðja
einnig niðurstöður PIAAC-könnunarinnar (Programme for
International Assessment of Adult Competencies) sem Efna-
hags- og framfarastofnunin OECD stendur fyrir. Vinnustaðir
eru því mikilvægt lærdómsumhverfi. Þessu þarf að gefa vægi
og vinnustaður og starfsmaður/einstaklingur þurfa að bera
sameiginlega ábyrgð á framþróun og uppbyggingu á færni.
Verkefnið snýst um að tengja saman aðferðir sem not-
aðar eru í náms- og starfsráðgjöf á vinnustað, raunfærnimati
og mannauðsstjórnun. Meginhugsunin er að draga fram það
nám og þjálfun sem fram fer á vinnustaðnum og aðstoða við-
komandi fyrirtæki og starfsmenn við að byggja upp lærdóms-
fyrirtæki og trúna á að skipulögð færniþróun í þágu beggja
aðila sé sameiginlegt hagsmunamál.
Stefnt var að því að þróa tæki til að:
• styrkja stjórnendur í aðferðafræði ráðgjafar,
• hvetja starfsmenn til starfsþróunar, meðal annars til að
mæta kröfum/þörfum atvinnulífsins,
• auka starfsþróunarhæfni einstaklinga/starfsmanna (CMS),
• efla trú á sameiginlegan ávinning af hæfnigreiningu og
viðeigandi ráðgjöf og þjálfun,
• hvetja til betri nýtingar fjármuna til starfsþróunarmála.
A F U R Ð I R V E R K E F N I S I N S
Meginafurðir verkefnisins eru þrjár:
1. Samanburðarskýrsla samstarfslandanna, Þróun ráðgjafar
á vinnustöðum – samanburður á aðferðum og tækjum.
Teknar voru saman upplýsingar í hverju landi um stöðu
náms- og starfsráðgjafar og skipulag og aðferðir sem
notaðar eru; raunfærnimat og mannauðsstjórnun.
Niðurstöður leiddu í ljós að náms- og starfsráðgjöf er
framkvæmd af mismunandi hagsmunaaðilum í öllum
löndunum og er svipuð í formlega skólakerfinu allra
landanna. Möguleikar á ráðgjöf fyrir fólk á vinnumarkaði
eru fjölbreyttir og framkvæmdin ólík eftir löndunum. Í
Hollandi er til dæmis algengt að ráðgjöf fyrir fullorðna
sé framkvæmd af einstaklingum og einkafyrirtækjum,
sjá nánar: http://media.wix.com/ugd/667e11_18f4c341
48924d25a73c98ddb7134d15.pdf
2. Verkfærakista: Meginafurðin er í formi vefsíðu (verk-
færa kistu) sem hugsuð er sem tæki með hugmyndum að
verkfærum og aðferðum fyrir ráðgjafa til að:
• ná til fyrirtækja og stjórnenda (svo sem millistjórn-
enda og mannauðsstjóra)
• sinna ráðgjöf við stjórnendur og efla þá í að hvetja
starfsfólk til starfsþróunar