Hljóðabunga - 01.11.1978, Qupperneq 60
Vésteinn Lúðvíksson:
Gústi
Jónu Jóns
eða vandinn að vera
sjálfum sér samkvæmur.
— Grátt gaman í einum þætti.
PERSÓNUR:
Gústi, smá-athafnamaður frá fsafirði. getur verið á
aldrinum frá þrítugu til fimmtugs.
Dóra, kona hans, eitthvað yngri.
Ókunnugur. dularfullur maður á ókveðnum aldri.
(Sviðið er afkrókur frá einhverjum barnum á Hótel
Sögu. Vinstra megin situr Ókunnugur með dökk sól-
gleraugu og les Dagblaðið. Hann er vel klæddur og
reykir sígarettu með munnstykki. Tómt glas er á
borðinu. Inn frá hægri koma Gústi og Dóra. Hann er
með glas. hún ekki.)
Dóra: Nú verð ég að hanga hérna yfir þér
þangað til fundurinn byrjar. Klukkutíma og
kortér.
Gústi: Þú getur farið allra þinna ferða, góða
mín. Ég passa mig.
Dóra: Sá held ég að passi sig! Ef ég er ekki yfir
þér, þá verðurðu þér til skammar. Þú þarft
ekki nema tvö glös, Gústi minn, til að missa
alla dómgreind og halda að þú sért einhver
ógurlegur stórkarl.
Gústi: Svona svona, ég drekk bara þetta eina
glas. En ég á það líka skilið. Ég er ekki kosinn
á landsfund flokksins í fyrsta skipti fyrir ekki
neitt. Og við borðum heldur ekki hérna á
Hótel Sögu á hverjum degi, góða mín.
Dóra: Ja seisei.
Gústi: Seisei hvað?
Dóra: Þú ert bara nervus, Gústi minn, það er
þessvegna sem þú þarft að hressa þig.
Gústi: Nervus? Ég?
Dóra: Skítnervus! Og þú ert búinn að vera það
alveg síðan þeir tóku uppá því að kjósa þig. Þú
að fara suður á landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Gústi Jónu Jóns.
Gústi: Ég heiti Gústav Pétursson Hér heiti ég
Gústav Pétursson og mundu það. Og ég er
ekkert nervus. Alls ekkert nervus. Aðeins pínu-
lítið spenntur að sjá hvort... Já, það er nú ekki
að vita nema ég verði kosinn í nefnd.
Dóra: Jesús minn!
Gústi: Já, bíddu bara. En nervus er ég ekki. Og
þó ég sé það. þá er það af allt öðru, góða mín.
Ójá , allt öðru. Þessi orðrómur...
Dóra: Góði besti, þú veist að þetta er ekki satt.
Gústi: Það getur nú komið við mann samt.
Dóra: En þetta er svo fáranlegt: ég að halda
framhjá þér. Og það með kennarablók að
sunnan og kommúnista í þokkabót.
Gústi: Nei, það er ekki trúlegt, ég viðurkenni
það.
Dóra (lágt): Ferlega myndarlegur náungi þessi
þarna.
Gústi: (lágt): Ha? þessi? (Þau virða Ókunnug-
an fyrir sér.)
Dóra (lágt) : Ætli hann sé að fara á
landsfundinn?
Gústi (lágt): Áreiðanlega. Þetta er okkar mað-
ur. Ég sé það á svipnum.
Dóra (lágt): Ég kannast eitthvað við hann.
Gústi (lágt): Égsegi nú það sama.
Dóra (lágt): Hann hlýtur að hafa komið í sjón-
varpið. Heyrðu? Þetta er einhver leikari.
Gústi (lágt): Leikari? Hvað heldurðu að svo-
leiðis fólk sé að gera á landsfundinn okkar?
Ne-ei, þetta er einhver sérfræðingur.
Dóra (lágt): Sérfræðingur?
Gústi (lágt): Já, það var mynd af honum í
blaðinu einhverntíma í fyrra. Hann ber það
líka með sér. Sérðu ekki hvað hann er sérfræð-
ingslegur á svipinn? Heyrðu? Nú man ég hvað
hann er. man það. Þetta er... Þetta er
áreiðanlega hann. Sérfræðingur flokksins í
varnarmálum.
Dóra (lágt): Varnarmálum? Alltaf ertu nú jafn-
rómantískur.
60
HLJÓÐABUNGA