Heimili og skóli - 01.12.1959, Blaðsíða 5
Heimili og skóli
18. árgangur Nóvember—desember 1959 6. hefti
Innri reynsla jólanna
Eftir LOUISE HAVREVOLD
Á vissum tímum ársins streymir
orka ljóssins með auknum styrk frá
æðri veröldum. Eitt af þessum tíma-
bilum er jólafastan, en orkustraumur
þessi nær hámarki sínu um jólin sjálf.
Þegar jólafastan byrjar, skynja
margir aukin áhrif friðar og kyrrðar.
Það er eins og öll hin ytri náttúra sé
þrungin af friði, sem svo streymir í
gegnum okkur og fyllir okkur af sér-
stakri tilhlökkun.
Margir mundu þó geta meðtekið
meira af þessum friði, sem við köllum
liamingju eða gleði, ef okkar ytra líf
væri ekki fullt af óróa, og við gætum
komizt hjá því að dragast inn í þenn-
an hégómaeril, en gæfum okkur í þess
stað tíma til að taka á móti þeim orku-
straumum, sem streyma til jarðarinn-
ar frá guðdóminum — sérstök útgeisl-
un gegnum soninn, Kristsorkan.
Það er af þessum ástæðum, að við
finnum svo sterk friðaráhrif á jóla-
föstunni. Þessi innri friður undirbýr
Kristsfæðinguna í okkar eigin hjarta.
Eitthvað í meðvitund okkar opnast,
lyftist hærra. Það fæðist eitthvað nýtt
innra með okkur og gefur lífinu fyll-
ingu, og það getur enginn tekið frá
okkur aftur. Það liggur þar og vex —
eins og barnið vex undir hjarta móð-
urinnar.
Þess vegna höfum við fengið fæð-
inguna, sem tákn þess, sem alltaf ger-
ist um hver jól, og þess vegna eru jól-
in svo dýrleg.
Þetta orkuútstreymi er sent öllurn
lifandi verum. Og án þess gætum við
ekki notið áhrifa jólanna eins og við
gerum. Þá væru hin fögru orð jóla-
boðskaparins aðeins máttvana orð. En
af því að lífsorka guðdómsins streym-
ir til allra lifandi vera, þá fæðist nátt-
úran á ný — brum lifnar á tré og
runnum, og ósýnileg lífsorka streymir
um allt, — ný sköpun fer fram.
Ytri klæðnaður guðdómsins, sem
við köllum sól, er hinn sýnilegi ljós-
gjafi skaparans. Langt aftur í forna
fortíð hefur sólin verið tignuð, sem
guðdómleg orkulind.
Ef við getum skilið, að við erum
hluti af allífinu,og að sama lífsorka
streymir í gegnum allt líf, þá erum
við auðug. Það sem fæðist um jólin í
hjörtum okkar á áð lyfta okkur upp
úr efnisskel gamla ársins.
Innri vitund okkar hefur endur-
nýjazt og vaxið. Orka ljóssins á létt-
ara með að streyma í gegnum okkur
og gefa okkur fyllingu. Skilningur
okkar á mikilvægi hins innra lífs og
að reynsla hins ytra lífs er eitt og hið
sama, opnast fyrir okkur. Því að allir