Heimili og skóli - 01.12.1959, Blaðsíða 6
118
HEIMILI OG SKÓLI
geta meðtekið þessa ljósorku alheims-
ins, sem alltaf streymir í gegnum okk-
ur, svo að við verðum þróttmeiri og
getum sýnt öðrum gleði og vingjarn-
leik.
Við gefum ekki aðeins meðbræðr-
um okkar, heldur einnig dýrunum,
trjám, plöntum og steinum, sem við
göngum á, eitthvað af okkar eigin lífi
í gegnum sveiflur. Við hjálpum til við
sköpunina í smáum stíl.
í Biblíunni finnúm við frásagnir af
merkilegri innri reynslu. Þessir spá-
menn þeirra tíma, voru sálir, sem gátu
opnað sig fyrir innstreymi andlegrar
orku, og svo skýrðu þeir frá reynslu
sinni. Þeir gátu séð það ókomna, sem
öðrum var hulið, og lifðu og hrærð-
ust í andlegu umhverfi með hugsanir
sínar og tilfinningar. Þar er einnig
hægt að lesa um mikla baráttu milli
hins hærra og hins lægra eðlis, eins og
t. d. þegar Jakob glímdi við drottin
— en hann var tákn um vaxtarbrodd
hins andlega eðlis.
Þannig er það einnig á okkar tím-
um — barátta í hugum manna, sem
verður að heyja, svo að sálin geti end-
urnýjazt og fæðzt aftur. Þess vegna er
þessi endurnýjunartími svo mikilvæg-
ur, og ætti að ljóma af gleði, sem allir
gætu eignazt.
Frá glöðu hjarta streymir kærleikur
og góðvild. Hér er ekki átt við kær-
leika, sem er blindandi, en kærleik,
sem streymir út eins og orka — sem
gefur allt og endurnýjast stöðugt í
hjörtum okkar, brennir og eyðir öllu
ljótu, svo að kærleikurinn verður að
síðustu hreinn og óeigingjarn.
Þetta er athöfn, sem tekur langan
tíma, en það hafa alltaf verið til stór-
menni, sem hafa vísað veginn með
fögru fordæmi og gegnum göfugar
kenningar.
Við þökkum þessum meisturum
með virðingu og lotningu.
Tónarnir, sem lifa og hrærast í
hljómlist englanna, og þeir tónar, sem
hrærast í hjörtum okkar, eru þeir
sömu. Söngurinn í hjarta okkar, sem
aldrei þagnar, hjálpar okkur að tak-
markinu.
Ef við megnum að opna okkur fyrir
ljósgeislum Kristsorkunnar, þá mundu
ljóstýrur okkar verða skærari. Þá
mundum við gleyma okkur sjálfum og
eignast fyllingu allífsins, svo að við
getum fundið eininguna í margbreyti-
leik lífsins, fundið frið og innri ham-
ingju, svo að hjarta okkar verði í sam-
hljómi við hjarta alheimsins, og fyllri
hljómur í hinum andlega heimi.
Bjartir englahópar, sem eru sendi-
boðar skaparans, munu bera þessa
hljóma frá musterum hjartna okkar
til hjarta hans, — sem er fullt af eilíf-
um söng kærleikans.
Eirikur Sigurðsson þýddi.
<11111 ■■IIIIIIIIUIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlKI*