Heimili og skóli - 01.12.1959, Page 7
HEIMILI OG SKÓLI
119
Áse Gruda Skard:
Jíuers megum vih vœnta af börnum
á mismunandi œviskeibum?
Litla stúlkan verður snemmþroskuð.
Gelgjuskeiðið er tími erfiðleika bæði fyrir
litlu stúlkuna og forsjármenn hennar.
í bréfi einu um Bertu skrifar móð-
ir hennar: „Það tognar mikið úr
Bertu um þessar mundir. Hún er ekki
aðeins orðin há, heldur hefur hún
einnig tekið á sig vöxt fulltiða konu.
Hún hefur fengið ávalar mjaðmir og
nokkur brjóst. Tveimur dögum eftir
að hún var ellefu ára hafði hún á
klæðum í fyrsta skipti. Ég hélt, að
þetta væri óeðlilega snemma, en lækn-
irinn segir, að telpur þroskist svo
snemma nú. Hún notar sama númer
af skóm og ég. Þegar hún er að heim-
an er hún blíð, góð, háttvís og hjálp-
söm, en hér heima er hún ókurteis,
fýld, þrætugjörn og ósvífin. Þegar ég
bið hana að taka til í herberginu eftir
sig, opnar hún aðeins skápinn og
hendir þangað öllu hverju ofan á ann-
að. Stundum hendir hún skónum sín-
um og skrifbókunum í skúffuna þar
sem hún geymir sokkana sína og vasa-
klútana. Stundum hágrenjar hún, ef
hún fær ekki leyfi til að fara í bíó,
jafnvel þótt hún hafi verið þar kvöld-
ið áður. Þetta fylgir líklega þessu
þroskaskeiði?
Henni gengur vel í skólanum, en
það gæti þó verið betra, ef hún legði
sig meira fram. Hún er farin að læra
að dansa, og það á nú við hana.“
Eftir þessu bréfi að dæma, er Berta
táknrænt dæmi um snemmþroskaða
telpu, telpu, sem er nokkuð á undan
flestum jafnöldrum sínum, en á við
sams konar erfiðleika að etja í frarn-
komu og háttum og aðrar telpur, sem
eru að hefja þetta erfiða skeið æv-
innar.
Líkamlegar breytingar.
Hjá telpum byrjar gelgjuskeiðið
nokkru fyrr en hjá drengjum. Líf-
færalegar breytingar byrja oftast um
tveimur árum áður en þær byrja að
hafa á klæðum, en það gerist venju-
lega um 12—14 ára aldurinn. Þarna er
þó nokkuð mikill munur á einstakl-
ingum. Hjá einstaka telpum gerist
þetta um 10 ára aldur. Hjá öðrum
aftur ekki fyrr en um 17 ára aldur.
En bezt er að hafa sagt þeim öllum í
tæka tíð á hverju þær eiga von. Það
getur haft ill áhrif á telpurnar, ef
þetta kemur þeim algjörlega á óvart.
Um það bil tveimur árum áður en
þessi breyting verður, hefur farið fram
allmikil breyting á líkama barnsins.
Telpurnar hækka mikið, matarlystin
vex eða verður misjöfn, brjóstin taka
miklum þroska, oft taka graftrarbólur
í andlitinu að angra ungmennin.
Ekkert af þessu fer fram hjá liinni
verðandi ungu stúlku, og á þessu