Heimili og skóli - 01.12.1959, Blaðsíða 10
122
HEIMILI OG SKÓLI
[Iingastarf í Björgvin
Með aukinni vélanotkun við hin
ýmsu störf hafa skapazt fleiri tóm-
stundir. Einkum á þetta við um ungl-
ingana.
En það er vandi fyrir óþroskaða
unglinga að verja þessum tómstund-
um svo, að þær verði þeim til aukins
þroska og hamingju. Víða í stórborg-
um vinna unglingar spellvirki á kvöld-
in og hneigjast að óhollum nautnum.
Afbrotadrengir mynda félög í þessu
skyni. Uppeldisfrömuðir og siðbóta-
félög reyna að ráða bót á þessu.
Hér á landi hefur tómstundastarf
fyrir unglinga farið vaxandi hin síð-
ari ár. Það er einn liðurinn í þessu
uppbyggingastarfi. Bæði bindindis-
samtökin og bæjarfélögin standa sam-
an að námskeiðum í þessu efni. Fyrsta
tómstundaheimilið af þessu tagi var
Æskulýðsheimili templara á Akureyri,
sem nú hefur starfað í sex ár. Síðar
hafa fleiri komið á eftir.
Annars staðar hafa menn komið
upp sérstökum skemmtikvöldum fyr-
ir unglinga til að halda þeim frá soll-
inum og lakari skemmtistöðum. í
Noregi er selt sterkt öl frá 2i/£—7%.
Unglingarnir byrja að drekka þetta
öl á börum, með smurðu brauði. Af
þessu öli drekka þeir sig ölvaða og
gera svo ýmis spellvirki undir áhrifum
þess. Margir ofdrykkjumenn segja, að
áfengsnautn sín hafi byrjað þannig.
Þegar ég var staddur í Noregi í
sumar, voru Norðmenn, frændur okk-
ar, uggandi út af framferði unglinga
í sumum borgum. í Osló höfðu
drengjahópar unnið skemmdarverk
m. a. í Wigelundsgarðinum fræga. Þá
voru fengnir þar nokkrir unglingar í
lið með lögreglunni og tók þá fyrir
þetta. Þessir drengjahópar voru venju-
lega í leðurjökkum og „hulehopp“-
buxum. Og var það einkennisbúning-
ur þeirra. í Björgvin var þetta vanda-
mál mjög á dagskrá eins og í Osló.
En í Björgvin var mér sagt frá sér-
stöku starfi, sem hrundið var af stað
í fyrra vetur til að skapa unglingun-
um hollar skemmtanir. Var það full-
trúaráð bindindissamtakanna í Björg-
vin, sem gekkst fyrir þessu. Eftirfar-
andi upplýsingar hef ég frá formanni
dagskrárnefndar þessa unglingastarfs,
sem ég hitti í Björgvin í sumar.
í miðbænum í Björgvin er kvik-
myndahús, sem kennt er við hljómlist-
armanninn Ole Bull. Undir þessu
húsi var óinnréttaður kjallari. Bind-
indissamtökin tóku hann á leigu og
innréttuðu hann í fyrra vetur. Þau
urðu að greiða 50 þús. krónur (norsk-
ar) í leigu eftir hann á ári. Þarna var
útbúinn skemmtistaður fyrir ungl-
inga. Ég sá þennan skemmtistað, og
er hann vistlegur með alls konar
tækjum til veitinga og önnur til gam-
ans og dægrastyttingar.
Þann 21. apríl siðastliðinn var hægt
að opna þennan skemmtistað og var
hann opinn á kvöldin þrisvar sinnum
í viku til 28. júní. Ráðgert var að
opna aftur 1. september. Inngangur-
inn kostaði kr. 1.00, en gert var ráð
fyrir að hækka hann í kr. 1.50 í haust,
en á öðrum skemmtistöðum er hann
3.00 krónur. Húsið rúmar 220 ungl-