Heimili og skóli - 01.12.1959, Blaðsíða 11
HEIMILI OG SKÓLI
123
inga, og er þarna alltaf húsfyllir.
Unglingar, sem þarna koma, eru flest-
ir á aldrinum 14—17 ára. Skemmti-
staður þessi er opinn frá kl. 6—IO14
á kvöldin. Er það skynsamlegri tími
fyrir skemmtanir en hér tíðkast. En
flest afbrot unglinga í bænum eru
framin klukkan 7—10, svo að tíminn
er ekki valinn út í bláinn.
Og hvað er svo þarna gert fyrir
unglingana? Haga þarf skemmtikvöld-
unum þannig, að þeir hafi ánægju af
þeim og vilji koma þangað, en jafn-
framt að hægt sé að koma til þeirra
hollum boðskap.
Byrjað er á dansi milli kl. 6—7. Þá
er fluttur stuttur gamanþáttur. Dans-
að er svo til klukkan 9. Hljómlistin er
fengin frá stórum plötuspilara, sjálf-
spilara, sem spilar vissar plötur, þegar
peningur er látinn í hann. Eigandi
plötuspilarans fær allt sem inn kem-
ur og er það venjulega 350 krónur á
kvöldi. Stundum ber við, að hljóm-
sveitir af öðrum skemmtistöðum korna
og leika þarna ókeypis fyrir ungling-
ana dálitla stund. Er það vel þegið.
Klukkan 9 fer svo fram aðaldagskrá
kvöldsins. Er hún blönduð gamni og
alvöru. Ein fastákveðin 7 mínútna
ræða er á hverju kvöldi. Oft er hún
um einhver félagsmál. Lengri má ræð-
an ekki vera. Annað efni dagskrárinn-
ar er söngur, hljómlist, upplestrar,
leikþættir o. fl. Er þá dansað um
stund til klukkan 10 mínútur yfir 10.
Þá flytur stjórnandi kvöldsins stutta
ræðu um efnið: Þannig viljum við
hafa það. (Slík vil vi ha det.) í lok
ræðu sinnar biður hann unglingana
að taka til í salnum og er það fúslega
gert á fáum mínútum. Lögregluþjón-
ar og aðrir eftirlitsmenn eru þarna á
hverju kvöldi. „Leðurjakkarnir"
koma þarna, en lögðu fljótt niður ein-
kenninsbúning sinn. Þótti hann ekki
eiga vel við á þessum stað. Aldrei
urðu þarna nein vandræði vegna
framkomu þessara pilta, eða vegna
vínnautnar, sem auðvitað var algjör-
lega bönnuð.
Ekki höfðu bindindissamtökin efni
á að kaupa öll áhöld í þennan
skemmtistað. Sjálfspilarann hef ég áð-
ur nefnt. Hann var leigður. En hann
kostar 16—17 þús. norskar krónur. En
margt af nauðsynlegustu áhöldunum
var leiart gem vissum hundraðshluta
af tekjunum eða skipti við viss fyrir-
tæki. Af þessum áhöldum má nefna:
Pylsusteikjara, kæli, súkkulaðiskáp,
ísvél, cóka-cólaskáp o. fl. En stóra
uppþvottavél urðu þeir að kaupa fyr-
ir 3 þús. norskar krónur. í vetur verð-
ur þessi skemmtistaður unglinganna
opinn 4 kvöld í viku, og auðvitað eru
laugardagskvöldin þar með.
í haust ætluðu forstöðumenn þessa
unglingastarfs að byrja með því að fá
alla leiðandi menn borgarinnar til að
flytja 7 mínútna ræðuna. Byrja átti á
borgarstjóra, biskupi, yfirlögreglu-
þjóni o. s. frv. En dagskrárstjórinn
sagði mér, að erfiðasta viðfangsefnið
væri að fá frambærilega dagskrá fjór-
um sinnum í viku. Það skapaði stund-
um andvökunætur. Öll vinna er sjálf-
boðavinna, nema einn starfsmaður,
sem undirbýr allt að deginum. Bær-
inn styrkir þessa starfsemi.
Þetta framtak bindindissamtakanna
í Björgvin er til fyrirmyndar. Þarna
er raunhæft tekið á vandamálum bæj-
arunglinganna. Tómstundastarfið hér
er hliðstætt, aðeins á öðru sviði.
Eirikur Sigurðsson.