Heimili og skóli - 01.12.1959, Blaðsíða 21
HEIMILI OG SKÓLI
133
Alþjóél egt vandamál
Á hverjum einasta degi allt árið um
kring fæðast mannkyninu 200.000
börn. Það svarar til þess að fólksfjölg-
unin sé 5000 hvern klukkutíma dag
og nótt. Þjóð, eins og t. d. Bandaríki
Norður-Ameríku, fjölgar um 3 millj.
á ári og mun því telja 300 milljónir
árið 2000. í Indlandi og Pakistan er
fjölgunin 4 milljónir á ári. Nú er tal-
ið að 2.8 milljarðar manna séu í heim-
inum. Með sömu fólksfjölgun verður
þessi tala tvöfölduð eftir 70 ár.
Það er talið, að tveir þriðju hlutar
allra manna í heiminum svelti að
meira eða minna leyti. í Indlandi og
Pakistan verða menn að láta sér nægja
1700 hitaeiningar að jafnaði daglega.
En 1800 hitaeiningar er talið lágmark
til þess að menn haldi heilsu og
kröftum.
Til samanburðar má geta þess, að
venjulegur verkamaður í okkar lofts-
lagi þarf 4000 hitaeiningar á dag.
Hungrið er þannig orðin staðreynd á
stórum svæðum jarðarinnar. Með
hinni öru fólksfjölgun, sem nú á sér
stað eru margir farnir að spyrja sjálfa
sig, hvort það eigi fyrir mannkyninu
að liggja að farast úr hungri.
Mjög náið samband er á milli
menntunarstigs þjóðanna og hinnar
líkamlegu hagsældar. Frá Saineinuðu
þjóðunum fáum við að vita, að 1200
milljónir manna víðs vegar um heim
kunni hvorki að lesa né skrifa. I þess-
um 1200 milljónum eru ekki talin
börn innan 10 ára aldurs. Það er þetta
fólk, sem liefur svo lág laun, að eng-
in leið er að lifa af þeim mannsæm-
andi lífi. Þess vegna hefur það verið
eitt af hinum meiri háttar viðfangs-
efnum Sameinuðu þjóðanna, að bæta
menntunarástandið á hinum síðari ár-
um, og hefur orðið mikið ágengt. Það
starf var raunar hafið áður.
Ég var dálítið óheppinn með báðar kon-
urnar mínar. Hin fyrri vildi skilja við mig,
en hin vildi það ekki. — R. K.
Einn af hinum duglegustu deildarstjórum
í fyrirtæki okkar gekk á fund forstjórans og
fór fram á launahækkkun, en svar forstjórans
var þetta:
„Laun yðar eru talsvert hærri en laun þess
deildarstjóra, sem næstur yður er, og hann á
fimm böm.“
„Já, það er sjálfsagt rétt,“ svaraði deildar-
stjórinn. „En ég hélt, að við fengjum laun
okkar fyrir það, sem við vinnurn hérí en ekki
það, sem við vinnum heima í tómstundum
okkar.“
Hann fékk samstundis launahækkun.
Haukur litli vildi ekki borða, og móðir
hans leit á hann ströng á svip og sagði: „Þú
ættir að skammast þín! Það eru mörg fátæk
börn, sem fá alls ekki neitt að borða.“
Haukur hugsaði sig um litla stund, leit
síðan strangur á svip á móður sína og sagði:
„Þú ættir að skammast þín, mamma, fyrir
að borða allan þennan mat, þegar fjölda-
mörg fátæk börn fá alls ekki neitt að borða.“
Maðurinn þarf hvorki að vera víðlesinn,
víðförull né auðugur, til að geta komizt til
mikilla áhrifa. Sá maður, er haft hefur gagn-
gerðust áhrif á allt mannkynið, varð aðeins
33 ára gamall. Hann fór aldrei lengra en 150
km frá heimili sínu, og svæðið, sem hann
ferðaðist um og starfaði á, var minna en Jót-
land. Þó lagði hann grundvöll að heimsmenn-
ingu.