Heimili og skóli - 01.12.1959, Blaðsíða 24
136
HEIMILI OG SKÓLI
lands. Veðurfar. Eldfjöll og hverir. Vötn, ár
og fossar. Fjöll og jöklar. Að klæða landið.
Þar er gróður landsins tekinn til athugunar.
Þá eru atvinnuhættir, svo sem landbúnaður,
fiskveiðar, verzlun og viðskiptalönd. Þá eru
samgöngur og langur kafli um þjóðina, ríkis-
valdið, skólakerfið og margt fleira.
I seinna heftinu er farið um allar sýslur
landsins og athugaðir merkis- og sögustaðir.
Þar er að sjálfsögðu mjög komið inn á sögu
þjóðarinnar. Þá er kafli um alla kaupstaðina.
Og loks er greinargott yfirlit um Færeyjar. í
þessum heftum er geysilegur fjöldi mynda,
bæði teiknimynda og ljósmynda. Þar er og
mikill fjöldi landkorta og línurita.
Bækur þessar munu verða mikill fengur
öilum þeim, sem áhuga hafa fyrir vinnubóka-
kennslu. Okkur, sem vorum að byrja kennslu
með vinnubókasniði fyrir 25—30 árum, hefði
þótt þessar bækur mikill hvalreki.
Ég þakka höfundi fyrir þessar ágætu bækur,
sem ég hef þó ekki haft tækifæri til að reyna
í verki. H. J. M.
Bráðum verð ég stór. Svo nefnist bók, sem
Heimili og skóla hefur borizt. Þetta er safn
ritgerða eftir böm og unglinga frá samkeppni
í barnatíma útvarpsins. Baldur Pálmason full-
trúi hefur búið til prentunar. Hér birtast 58
ritgerðir eftir unga og óþekkta höfunda. Efni
þessara ritgerða var á sinum tíma nokkuð af-
markað, eða með öðrum orðum: Börnin voru
beðin að segja til um, hvort betra væri að
vera fullorðinn eða barn. Þau voru beðin að
segja, hvernig fullorðna fólkið kæmi þeim
fyrir sjónir, og hvernig það ætti að vera, að
þeirra dómi. Þá voru þau beðin að segja, hvað
þau helzt vildu verða, er þau yxu upp, og
hverja þau vildu taka sér til fyrirmyndar. En
þrátt fyrir þetta afmarkaða svið, gætir þó
mikillar fjölbreytni í ritgerðum barnanna.
Margur mun nú halda, að ekki sé mikla
vizku að sækja í slíka bók, en sannleikurinn
er þó sá, að hún er mjög girnileg til fróðleiks
einmitt fyrir fullorðna fólkið. Auk þess kem-
ur fram í ritgerðum þessum svo mikill góð-
leikur, réttlætiskennd og hreinskilni, að það
er unun að kynnast þarna viðhorfum barn-
anna.
Þau dæma fullorðna fólkið ekki hart, þótt
þau sjái galla þeirra, því að börn hafa næma
réttlætiskennd, en góðvild þeirra kemur í veg
fyrir harða dóma. Það er ekki fyrr en um og
eftir gelgjuskeiðið, sem hinir hörðu dómar
koma.
Það kemur víða fram í ritgerðum þessum,
að börnin þrá viðurkenningu og að tekið sé
tillit til þeirra; en það er einn hinn hættu-
legasti misskilningur í uppeldinu, að ganga
alltaf fram hjá skoðunum barnanna, eins og
væru þau óvitar, sem ekkert mark sé á tak-
andi.
Annars kemur það fram þarna, að börnin
gera miklar kröfur til fullorðna fólksins, að
það sé til fyrirmyndar í hvivetna, en þar
verða þau oft fyrir vonbrigðum.
„Það er vandasamt að vera lítill drengur,"
segir einn. „Hvað ætli þú getir, pottormurinn
þinn," segir hann að fullorðna fólkið segi,
þegar boðin er fram þjónusta. Það er auð-
fundin sársauki í þessari afstöðu fullorðna
fólksins, og þó geta þessir rithöfundar gert
góðlátlegt grín að fullorðna fólkinu fyrir hé-
gómaskap þess, tvískinnung og hræsni.
Það væri freistandi að nefna mörg dæmi
um skarplegar athuganir barnanna á full-
orðna fólkinu, svo og framtíðarhorfum
þeirra sjálfra.
Ég vil ráða fullorðnu fólki til að lesa þessa
bók. Auk þess sýnist mér, að hún gæti verið
tilvalin lestrarbók í barnaskólum.
Loks hafa Heimili og skóla borizt tvær
nýjar bækur frá Bókaútgáfu Æskunnar. Eru
bækurnar þessar:
Geira glókollur í Reykjavik, eftir Margréti
Jónsdóttur skáldkonu. Þetta er síðari hluti
þessarar skemmtilegu telpnabókar. Fyrri
hlutinn kom í fyrra. En Geira glókollur er
telpa, sem elzt upp í sveit um síðustu alda-
mót, og er þvi forvitnilegt söguefni fyrir nú-
tímatelpur. Sagan lýsir vel baráttu hennar og
móður hennar til að koma henni til mennt-
unar og þroska. Nú er eftir að vita, hvernig
Geiru vegnar í Reykjavík.
Didda dýralœknir, eftir Gunnvor Fossum,
nefnist hin bókin, og hefur Sigurður Gunn-
arsson, skólastjóri á Húsavík, þýtt hana.
Bækur eftir þennan höfund hafa náð vin-
sældum hér á landi, en þetta mun vera ein
skemmtilegasta bók þessa höfundar, sem er
mjög vel þekktur í Noregi.
Enn sem fyrr er óhætt að mæla með út-
gáfubókum Æskunnar. H. J. M.