Heimili og skóli - 01.12.1959, Side 25
HEIMILI OG SKÓLI
137
BARNAÚTBURÐUR
í fornöld tíðkaðist barnaútburður í
mörgum löndum og meðal annars á
íslandi. í seinni tíð þykir það tíðind-
um sæta, ef slíkt á sér stað. Þetta kom
þó fyrir í Lundúnaborg fyrir nokkr-
um vikum. Inni í miðri borginni
fannst þessi litla stúlka, um það bil
tveggja vikna gömul. Hafði henni ver-
ið komið fyrir í innkaupatösku og síð-
an skilin eftir í símaklefa einum. Þar
fannst hún og svaf þá vært, eins og
myndin sýnir. Litla stúlkan vó 14
merkur. Hún var vel hirt og í alla
staði venjulegt barn. Hitt er gáta,
hvað komið hefur hinni óhamingju-
sömu móður til að skilja barnið við
sig á þennan hátt.
Litlu stúlkunni hefur nú verið
komið fyrir í bili á enskum barna-
spítala. Þar var það upplýst, að barna-
útburður væri langt frá því eins sjald-
gæft fyrirbrigði og margir halda.
Burt með herna&arleikföng
Fyrir nokkrum vikum átti kona ein erindi
við mig á skrifstofu skólans. Hún hafði með
sér þrjú lítil börn, á að gizka 4, 5 og 6 ára,
og þar af voru tvær stúlkur. Öll voru börnin
með stórar og iburðarmiklar gerviskamm-
byssur, sem þau miðuðu í allar áttir. Mér
leið illa af að sjá þessi þrjú ungu og saklausu
börn hafa í höndunum slík leikföng, og ég
skil ekki þann smekk foreldra að gefa börn-
um sínum slíka hluti. Byssur eru yfirleitt ekki
notaðar til nema eins —• að drepa lifandi
verur. Og sú liugsun hlýtur að fylgja þessum
leikföngum.
Svipað má segja um tindátana, sem drengir
fá oft að gjöf. Jafnvel á okkar friðsama landi
íslandi vekja slík leikföng hugsanir, sem eru
liklegar til að afmanna, en ekki göfga.
Leikföng eru oft raunveruleiki hjá börn-
unum. Þau lifa sig inn í leikina. Tökum t. d.
brúðurnar, sem vekja hlýjar móðurtilfinning-
ar hjá litlu telpunum. Kærleiki þeirra og ást -
úð fær sannalega útrás í brúðuleikjunum.
Lítum á bátana og bílana, sem litlu dreng-
irnir leika sér að. Það verður þeim nánast
veruleiki. — Hernaðarleikföng vekja aðeins
grófar og illar hugsanir. Leikföng barnanna
eru ekki aðeins til að stytta þeim stundir. Þau
eru uppeldistækí. Þvi skyldu allir foreldrar
hafa það hugfast, að vanda val leikfanga
handa börnum sínum. Leikföngin hafa með
vissum hætti sál, sem verður félagi barnanna.
Vandið vel til þessa félaga. H. J. M.
Undanfarið hefur nokkuð verið kvartað
yfir vanskilum á blaðinu. Þetta stafar nær
eingöngu af þvi, að afgreiðslan hefur ekki
verið látin vita um rétt heimilisfang. Það eru
því vinsamleg tilmæli blaðsins, að afgreiðslu-
maður þess sé látinn vita, þegar heimilisfang
breytist. Það myndi mjög koma í veg fyrir hin
leiðinlegu vanskil og aukasendingar af blöð-
um til þeirra, sem fyrir vanskilum verða. Lát-
ið því afgreiðsluna vita strax, þegar um bú-
staðaskipti er að ræða.
Vinsamlegast, Útgefendur.