Heimili og skóli - 01.10.1962, Blaðsíða 17

Heimili og skóli - 01.10.1962, Blaðsíða 17
HEIMILI OG SKÓLI 117 Lað er því lífsnauðsyn fyrir hverja móður að reyna að skilja barnið sitt og þorskastig þess. iÞá mun hún sjá yf- irsjónir þess í réttu ljósi, í samræmi við þær aðstæður, sem fyrir hendi voru. En sá skilningur er bezta og ör- uggasta meðalið við öllum æstum til- finningasveiflum, sem oft setja hjólið af stað. Enn má benda á tvennt, sem leitt getur til þess, að „hinn hættulegi leik- ur“ þróist á milli móður og barns. Það er of mikið eftirlæti við barnið og of mikið afskiptaleysi og hirðuleysi um uppeldi þess og hagi. Nic Waal segir: „Til eru mæður, sem ganga alltaf með barnið í fanginu, sem alltaf kyssa það og kjassa og sýna það hverjum, sem vill. Þetta er ekki gert af ást til barns- ins fyrst og fremst, heldur í eigingjörn- um tilgangi. Verulegur hluti af öllum þessum atlotum, sem virðast í fljótu bragði stafa af móðurást, er aðeins merki um ófullnægðar þarfir móður- innar. Slík óhófleg atlot geta leitt beint til þess, að barnið fari að leika með móðurina. Annars verður vart nokkurs mis- skilnings varðandi hugtakið „að gráta fram vilja sinn“. Það er mjög eðlilegt að lítil börn kjökri eða gráti, þegar þeim finnst eitthvað að, og ef ástæðan verður fundin og fjarlægð, þarf þetta ekki að leiða til neins dekurs við barn- ið. En sá er gallinn, að margar mæður hirða ekki um, eða geta ekki oft og tíðum, fundið ástæðuna fyrir óánægju barnsins, en finna upp alls konar að- ferðir til að róa það. Það líður því ekki á löngu áður en barnið hefur komizt að því, að það þarf ekki annað en að skæla til að fá hvað, sem það vill, og þar með er leiknum hrundið af stað. Ekkert barn getur þolað ástleysi, hirðuleysi og tómlæti. Og það er hryggilegt að þurfa að viðurkenna, að hér er mikið vandamál fyrir þessa litlu smælingja: — Hvernig get ég fengið móður mína til að sinna mér og þörfum mín- um? Og barninu tekst það. — Heldur snoppung og skammir en afskipta- leysi. — Og leikurinn er brátt í fullum gangi. 1 tveggja herbergja íbúðum, sem eru svo algengar nú á tímum, verður erfitt að komast hjá því að nota hina gömlu og útslitnu upphrópun: — Þú mátt ekki — þú skalt. — En það er þó ekki sama í livaða tón þessi orð eru töluð. Sífelldar ógnanir, allt of mörg bönn og fyrirskipanir, sem ekki er hægt að hlýða, og kannski er varla ætlazt til að hlýtt sé, eru oft upphaf „hins hættulega leiks". Einbeittni er nauðsynleg, en hún þarf ekki að koma í veg fyrir ástríki. Aftur kemur sannur kærleikur og skilningur í veg fyrir geðvonzku, sær- andi aðfinnslur og tómlæti. Ástríkið gefur barninu tækifæri til að láta í ljós sínar tilfinningar, þegar það heyr- ir orðin „þú mátt ekki“ og „þú skalt“ með ófrávíkjanlegri einbeittni. iÞetta er mikilvægt. Fái barnið sem allra fyrst að láta í ljós tilfinningar sínar, og séu foreldrarnir við því bún- ir að taka því án þess að setja á svið einhvern æsilegan tilfinningaleik, fá tilfinningar barnsins útrás í stað þess að verða lokaðar inni, þar sem þær kunna að setjast að í undirvitundinni og verða vaki nýrra árekstra.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.