Heimili og skóli - 01.10.1962, Qupperneq 26
126
HEIMILI OG SKÓLI
Fimmtugur:
Siguröur Gunnarsson
kennari
Þegar þetta hefti af Heimili og
skóla var að fara í pressuna, barst mér
vitneskja um, að Sigurður Gunnars-
son, fyrrverandi skólastjóri í Húsavík,
hefði orðið fimmtugur 10. okt. s. 1.
Eg vissi að Sigurður Gunnarsson er
yfirlætislaus maður, en ég bjóst varla
við að honum tækist svona vel að
leyna þessum merku tímamótum í lífi
sínu. Ég vil nú á síðustu stundu koma
á framfæri örfáum orðum um þennan
vin minn og starfsbróður í tilefni
þessa afmælis, þótt nokkuð verði á
eftir dúk og disk. Ég ætla að sleppa
því að rekja æviferil hans, en geta þess
Samþykkt um búsetu námsstjóra.
Aðalfundur Kennarasambands Austur-
lands 1962 vill eindregið mælast til þess
við yfirstjóm menntamála, að þegar náms-
stjóraskipti verða næst, verði tekið fullt
tillit til endurtekinna óska kennara á
Austurlandi um, að námsstjóri sé búsett-
ur á eftirlitssvæðinu.
Samþykkt um kennaranámskeið.
Aðalfundur Kennarasambands Austur-
lands 1962 beinir því til næstu stjórnar
sambandsins, að hún athugi, hvort ekki
reynist unnt að koma á námskeiði í starf-
rænni kennslu hér á Austurlandi á næsta
ári.
aðeins, að hann er fæddur að Skógum
í Axarfirði. Foreldrar hans voru þau
hjónin Gunnar Árnason frá Bakka í
Axarfirði og Kristveig Björnsdóttir
frá Skógum.
Sigurður lauk gagnfræðaprófi við
Menntaskólann á Akureyri og síðar
kennaraprófi og hefur verið kennari
síðan, lengst af hefur hann verið skóla-
stjóri í Húsavík, eða um 20 ára skeið.
iÞessi 20 ára saga Sigurðar í Húsavík
er merkileg og óvenjuleg, eins og Sig-
urður er óvenjulegur maður. Hún er
saga um fágætan áhuga, ábyrgðartil-
finningu, þegnskap og fórnfýsi. Sig-
urður Gunnarsson lét sér ekki aðeins
óvenjulega annt um skóla sinn, heldur
vissi hann sem var, að skóli þrífst ekki
nema í menningarumhverfi, því var
það, að hann lét sér fátt óviðkomandi,
sem studdi að almennri menningu
Húsavíkur á þessum árum. Hann
vann að kirkju og kristindómsmálum,
bindindismálum, barnaverndarmál-
um, og flestum þeim greinum félags-
skapar, sem til mannbóta og menn-
ingar horfa. Öllum þessum málum
lagði hann lið af svo mikilli einlægni
og bjartsýni, að hann gat gert aðra