Heimili og skóli - 01.06.1971, Qupperneq 7
A skáldakynningu. LjóS Kristjáns frá Djúpalæk kynnt.
Myndræn
kennsla
Starfræn
kennsla
VettYangs
kennsla
HEIMILI OG SKÓLI
ef vel er á haldið. Samt má reikna með, að í náinni framtíð, verði meira
um myndræna kennslu með dýrari hjálpartækjum t. d. myndvörpum,
skuggamyndavélum og litlum, handhægum kvikmyndavélum. Einnig má
búast við notkun sjónvarps, ekki sízt, ef hægt er að ráða kennsluefninu
með því að nota þau eins og kvikmyndavélar og mata þau á aðfengnu
efni. Þetta er framkvæmanlegt nú, en mjög dýrt og því verður að bíða
frekari þróunar á þessu sviði. 011 þessi hjálpartæki verður þó að nota
með stakri varúð og mest sem uppfyllingu í kennsluna. Myndasýning
hefur því aðeins gildi að hún sé hnitmiðuð og til skýringar og undir-
strikunar á því efni, sem verið er að kenna hverju sinni. Barnið má
aldrei fá þá tilfinningu, að kennslutækið sé til þess að hvíla kennarann,
og gefa honum góða daga á kostnað þess, sem þrýst er til náms.
í fraintíðinni má vafalaust búast við sjálfstæðari vinnubrögðum nem-
enda, bæði innan og utan skólans. Slíkt nám er mjög þroskandi og nem-
endur, er þannig vinna, verða fyrr sjálfstæðir í hugsun og gerðum. Hins
vegar, er rétt að hafa í huga, að fjölmörg böm láta leiðast af öðrum og
verða lítils ráðandi í hópnum, þó að hann sem heild skili góðu starfí.
Þannig verður lítill námshópur að spegilmynd þjóðfélagsins. Þar ráða
vissir einstaklingar. Fara þau völd ekki alltaf eftir námshæfni, heldur
koma margir eðlisþættir og áhrif til svo sem: uppeldisvenjur, metnaður,
foringjahæfileikar og jafnvel fjárráð á heimilinu. í skólanáminu verð-
ur það hlutverk kennarans að leiða hópinn og jafna störfum, ábyrgð og
áhrifum, svo sem kostur er.
Gera má ráð fyrir að vettvangskennsla fari vaxandi. Er þar átt við
þá grein átthagafræðikennslu er eykur þekkingu nemenda á öðru um-
hverfi en þau búa vanalega í. Borgarbörnin dvelji í sveit nokkra daga og
51