Heimili og skóli - 01.06.1971, Page 10
Hverju á aS
hafna og
hvað á aS
velja
Lokaorð
í bænum svo sem: íþróttafélög, skátafélög, tónlistarfélög, bindindisfé-
lög, skákfélög, frímerkjaklúbbar, leikfélög og dansskólar sækjast líka
eftir þeim, þá verða heimilin að vera fær um að hjálpa börnum sínum
til þess að velja og hafna. Böm eru ekki ætíð dómbær á, hversu mikið
þau geta tekið að sér, án þess að það bitni á skólanáminu, er ætíð hlýtur
að gera fyrstu kröfur.
Það sem að framan greinir eru aðeins nokkur atriði varðandi þróun
og stefnu barnafræðslunnar sl. 100 ár. Þau eru aðeins til upprif junar og
umhugsunar fyrir þá, er nú senda börn sín í skóla og geyma í eigin
barmi viðmiðun frá sinni skólagöngu. Tímarnir breytast hratt og kröf-
urnar aukast að sama skapi. Fyrir nokkrum áratugum töldust gagnfræð-
ingar til menntamanna og höfðu þó að baki mun minna nám að yfirferð
og fjölbreytni en þeir gagnfræðingar er útskrifast nú. Með sömu þróun
hér og á hinum Norðurlöndunum, má gera ráð fyrir, að innan áratugs
verði stúdentspróf eða hliðstæða þess að almenningseign og til háskóla-
náms fari stór hluti þjóðarinnar. Þá verða þeir einir taldir menntamenn.
er með frumkvæði sínu mynda nýjar leiðir og stefnur til hagsbóta þjóð-
inni og mannkyninu.
Því hversu fullkominn, sem skólinn kann að verða, má liann aldrei
móta einstaklinginn eftir sínum geðþótta, heldur hjálpa honum til mann-
dóms og þroska.
Til gomons
Undir harðri messugjörð sunnudag nokkurn í
Reykjavík, þegar presturinn var vel upplagður
og þrumaði yfir söfnuðinum, varð einni safnað-
arkonunni að orði:
— Ja, þar fékk vinkona mín í Kópavoginum
almennilega á baukinn!
★
Frambjóðandi við kosningar heirnsótti prest-
inn í því skyni að leita eftir stuðningi hans.
— Áður en ég ákveð að styðja yður, langar
mig til að spyrja yður spurningar, sagði prestur-
inn.
— Spyrjið bara, sagði frambjóðandinn.
— Neytið þér áfengra drykkja?
— Áður en ég svara, langar mig til að spyrja
eins, sagði frambjóðandinn varkár. — Eruð þér
að spyrja mig eða eruð þér að bjóða mér?
★
Kaupmaðurinn við kollega sinn, sem hann hitti
á götu:
— Ég 'heyrði að það 'hafi kviknað í verzlun-
inni hjá þér og brunnið allur lagerinn. Mér þótti
leiðinlegt að heyra þetta.
— Hvað segirðu maður, það átti ekki að ske
fyrr en um helgina.
54
HEIMILI OG SKOI.I