Læknaneminn - 01.06.1965, Side 6
6
LÆKNANEMINN
leyti bar mikið á skoðunum um að
kynbœta mannkynið. Þegar fyrir
aldamótin 1900 hafði hinn frægi
erfðafræðingur Sir Francis Galton
skýrt og hleypt af stokkunum
hreyfingu, sem hann kallaði Kyn-
hreinsunarhreyfinguna (Eugenic
Movement). Markmið talsmanna
þeirrar hreyfingar var í stuttu
máli að stuðla að því með hjálp
erfðafræðiþekkingar, að hinir
hæfu meðal manna ykju kyn sitt,
en aðrir óhæfir yrðu hindraðir í
því. Þessar hugmyndir og kenn-
ingar ollu auðvitað hörkudeilum.
Komu fljótt í ljós ýmsir annmark-
ar á því að fylgja þeim fram.
Margt þótti orka tvímælis í þeim,
og þekkingin á erfðafræði manna
var mjög í molum, að ekki sé tal-
að um þekkingu manna á áhrifum
umhverfisins á mótun manna.
Kynhreinsunarhreyfingin varð
fyrir mikilli gagnrýni, bæði rétt-
mætri og óréttmætri. Ekki varð
úr, að víðtækar áætlanir um kyn-
hreinsun yrðu framkvæmdar.
Undir þunga mikillar gagnrýni
setti hreyfingin niður, og varð hún
aldrei að því fyrirtæki, sem upp-
hafsmenn ætluðu. Enn er þó til
virðulegt félag í Englandi, sem
heitir Eugenic Society, og eru
meðlimir þess hinir merkustu og
hæfustu menn. En „eugenics" er
sérstakt svið í erfðafræði manna,
og má minna á, að ýmis atriði
kynhreinsunarstefnunnar eru nú
framkvæmd og hafa verið um
langt skeið. I mörgum löndum
hafa verið sett sérstök lög, sem
leyfa vissar aðgerðir til að koma
í veg fyrir, að einstaklingar auki
kyn sitt. Þá einstaklinga sem
verða fvrir slíkum aðgerðum, er
áður búið að rannsaka og fjalla
um af sérstakri nefnd sérfræðinga,
sem yfirvöld hafa gefið vald til
að ákveða, hvort vönun skuli fram
fara eða ekki. Nefnd þessi heitir
vönunarnefnd, en hún tekur einn-
ig ákvarðanir um löglegar fóstur-
eyðingar.
Lög um vönunaraðgerðir eru til
í 27 ríkjum Bandaríkjanna og í
Evrópulöndum, eins og t. d. Norð-
urlöndum og þar á meðal Islandi.
Ég læt þessi orð nægja um við-
leitni manna til að bæta mann-
kynið með þessu móti, og mætti
þó margt fleira segja um skoðanir
erfðafræðinga í þessum málum.
Annað mikilvert vandamál er
komið til sögunnar, og það yfir-
skyggir fullkomlega öll heilabrot
um að kynbæta og kynhreinsa
mannkynið. Það er vandamálið
um verndun mannkynsins fyrir
kynspillandi áhrifum eiturefna,
og skulum við gera okkur nánari
grein fyrir því.
í fyrra heimsstríði vakti notkun
eiturgass mikla skelfingu, en í því
var frumu- og litningaeitrið
„nitrogen mustard". Þetta efni
hefur síðan verið notað til að
framkalla krabbamein í tilrauna-
dýrum, og einnig hefur það verið
notað sem lyf gegn vissum teg-
undum illkynja meina. Ég minn-
ist á þetta til að vekja á því sér-
staka athygli, að þegar í fyrra
heimsstríði voru litningar mann-
anna, „krómósómin“, orðin að
skotmarki. Sérstök alþjóðasam-
þykkt var gerð gegn notkun slíkra
eiturefna í hernaði. Gasgrímur
þær, sem hermenn síðara heims-
stríðs notuðu, gáfu til kynna, að
menn treystu ekki þeirri alþjóða-
samþykkt.
Áður en öðru heimsstríðinu
lauk, urðu litningarnir aftur að
skotmarki, og var þá beitt ennþá
skelfilegra litningaeitri en menn
höfðu áður fundið upp, kjarnorku-
geislum.
Síðan öðru heimsstríðinu lauk,