Læknaneminn


Læknaneminn - 01.06.1965, Blaðsíða 27

Læknaneminn - 01.06.1965, Blaðsíða 27
LÆKNANEMINN 27 hver, _sem vill, og líti þó áður sér nær. Ég hef rétt drepið á einn þátt í þessu vandamáli, en það er marg- þætt og ekki auðleyst. Þeim mun meiri ástæða er að ræða það. Og má ég þá drepa á fleira: f heiminum er hungrið og önnur vansæld einnig vandamál, þ. e. a. s. mín lífsfílósófía segir það vera, en svo hafa aðrir sína fílósófí. Sumir eru svo heppnir, að þeirrra fílósófí segir þetta vandamál ekki til (fjandi eru slíkir menn heppn- ir), og ég ber fulla virðingu fyrir allri fílósófí, þótt öndverð sé minni. Ég lít svo á, að okkur sé hin mesta nauðsyn að taka þessi mál til umræðu, ekki aðeins vegna hugsanlegrar skyldu, heldur einn- ig af beinum praktískum ástæðum. Bæði okkur læknanemum er það nauðsyn og einnig öðrum stúdent- um, og þá sérstaklega þeim, er við höfum kjörna okkar fulltrúa út á við, þ. e. í stúdentaráð. Enn er það nauðsyn stjórnendum þjóðarinnar; það er raunar nauðsyn öllum þeim, sem hugsa sér að njóta einhvers í vist sinni hér á jörð. Tökum eitt dæmi, þar sem nauð- synin er praktísk: Enginn veit, hvenær þjóðir þéttbýlla landa gera kröfur um land. Það er aðeins spurning um tíma, og við getum ekki undrazt slíkt — né láð við- komandi þjóðum. En þetta snertir okkur íslendinga, fáa menn í stóru landi. Við verðum því að diskútera þessi mál og vera viðbúnir að taka afstöðu til þeirra. Það virðist liggja nærri lækni að ræða þetta. Hann vinnur eftir universal prinsípum, sem hann hefur gengizt undir, og þau fjalla m. a. beint um verðmæti manns- lífa og hljóta því að vera byggð á fílósófí. En því segi ég þetta, að mér hefur virzt praxísinn ekki í öllu samkvæmur prinsípunum. Samkvæmt þeim er mannslíf mest virði alls. Én læknar hinna þró- aðri landa láta sig samt sem áður engu skipta, þótt mannslíf týnist unnvörpum með fjarlægari þjóð- um. Mér hafa oft virzt læknar ó- fúsir að ræða þetta. Ég veit ekki ástæðuna. Ég hef drepið á eitt tvö atriði í vandamálum heimsins og þó ekk- ert sagt frá eigin brjósti. Ég drap á þetta vegna þess, hver nauðsyn það er að mínu áliti, og vegna þess hve dauðyflisháttur og hugs- unarleysi eru leiðinleg fyrirbrigði. En ég var staddur í London. Að lokinni constipations-vikunni átti ég eina viku eftir í þeirri borg. Það var vikan, sem Churchill heitinn lá dauður ofanjarðar og beið þess að fara niður. Ég notaði hana til að skoða borgina stóru. Mér þótti mest koma til bókabúða hennar, en ágætar munu líka konserthall- irnar og það, sem í þeim er. Að öðru leyti er Lundúnaborg ekki merkilegri en aðrar borgir, nema fyrir fólksfjölda, jú og skít. Skít- ur er alls staðar, jafnt úti sem inni, jafnt í lofti sem á föstum hlutum. Það kann ég ekki við, enda kominn frá hreinasta landi í heimi. Vildi ég mikið til vinna, að það yndislega hreina land yrði ekki útbíað með kolareyk, og verði þá stóriðja heldur aldrei til á ís- landi, ef reykur skyldi fylgja. Mér er full alvara. En ég, smásveinn utan af Is- landi, hafði heyrt, að London væri svo merkileg borg. Ég ákvað að þefa af listaverkum borgarinnar — ég er vel mátulega snobbaður — og ég skyldi jú verða partíhæf- ur, er til íslands kæmi. Og ég labbaði mig inn á British Museum, og það var allt í lagi með það museum; en svo fór ég daginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.